Chess After Dark býður upp á sannkallaða veislu fimmtudagskvöldið 9. Nóvember á Arena.
Frá 19:00 – 20:30 verða CAD bræður með Pöbbkviss en Björn Þorfinnsson mun stýra því ásamt CAD bræðrum.

Frá 21:00 – 22:30 fer svo fram 9 umferða hraðskákmót með tímamörkum 3+2.
2-3 saman í liði í Pöbbkviss.

Verðlaun fyrir efstu þrjú sætin í báðum viðburðum:
1. 30.000 kr gjafabréf á Arena.
2. 20.000 kr gjafabréf á Arena.
3. 10.000 kr gjafabréf á Arena.
U2000: 10.000 kr gjafabréf á Arena.
U1600: 10.000 kr gjafabréf á Arena.
Mótið er reiknað til alþjóðlegra skákstiga.
Frítt inn.
Keppendur eru hvattir til að gera sér glaðan dag og næla sér í frábæran kvöldverð með léttum drykkjum á Arena.
Skráning hér: https://docs.google.com/forms/d/e/1FAIpQLSd0jmhe0ffvWwo7xubCs9jNRMli3Q55ztyhbcRVsoSPZ5GbKQ/viewform
Skráðir keppendur: https://docs.google.com/spreadsheets/d/1LWnKdoZ4RAHXt-EGMe5cVSOrp_L6U67Dtqq_TiszjDY/edit?resourcekey#gid=1152477220

















