Stórmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson (2529) náði gríðarlega mikilvægu jafntefli með svörtu mönnunum gegn stigahæsta manni mótsins, sjálfum Michael Adams (2670). Jafnteflið heldur Hannesi áfram hálfum vinningi á eftir efsta manni og í baráttunni á Heimsmeistaramóti 50+ sem fram fer á Ítalíu.
Tefldur var spænskur leikur, byrjun sem báðum keppendum líður vel í og hentar þeirra stíl. Skipt var snemma upp á drottningum og Hannes hélt velli mjög vel.
Tölvurnar gáfu Hannesi aðeins betra mat á einum tímapunkti í miðtaflinu.
Hér vilja tölvurnar bara leik 25…g6 og stoppa Bf5 og meta svörtu stöðuna aðeins þægilegri. Adams fórnaði skiptamun en fékk mjög sterkar stöðulegar bætur. Hannes ákvað að gefa lið til baka og hafði hrók gegn tveimur léttum en of lítið af liði inná og Hannes hélt endataflinu auðveldlega.
Staðan:

Hannes hefur 6 vinninga af 8 og er ásamt nokkrum öðrum hálfum vinningi á eftir Suat Atalik. Hannes er líklegast nokkuð heppinn með pörun á pappírnum í 9. umferðinni en hann fær hvítt á FIDE meistarann Arlan Cabe (2303) frá Filipseyjum. Filipseyingarnir geta verið brögðóttir þó og varast ber vanmatið!
Þrjár umferðir eftir og nú þarf Hannes að sýna hvað í honum býr!
- Mótið á chess-results
- Beinar útsendingar á lichess
- Beint á Chess24

















