Helgi Árnason í Sögu í gær. Mynd: Útvarp Saga.

Kristján Örn Elíasson hefur um margra mánaða skeið stjórnað, ákaflega vel heppnuðum, vikulegum útvarpsþáttum, á miðvikudögum, á Útvarpi Sögu – sem heita; Við skákborðið.

Í gær mætti Helgi Árnason í settið í Skipholtinu. Sigurbjörn Björnsson kom svo í símaviðtal síðar í þættinum. Í kynningu um þáttinn segir:

Að þessu sinni settist Við skákborðið hjá Kristjáni Erni Elíassyni Helgi Árnason formaður skákdeildar Fjölnis og fyrrverandi skólastjóri Rimaskóla. Helgi segir að hann hafi fyrst og fremst tengst skákinni í gegnum skólastarf og þá mest eftir að hann tók við starfi skólastjóra við Rimaskóla sem hann gengdi í 26 ár en skólinn var stofnaður árið 1993. Á tíu ára afmælis skólans árið 2003 urðu skáksveitir skólans Íslandsmeistarar bæði í stúlknaflokki og opnum flokki en Helgi segir að skólinn hafi verið með skákstarf frá upphafi og þá aðallega í gegnum tómstundastarf hjá Íþrótta- og tómstundaráði Reykjavíkur (ÍTR). Afraksturinn kom því fljótlega í ljós en á fyrsta borði tefldi Hjörvar Steinn Grétarsson, nú stigahæsti skákmaður landsins, þá aðeins 9 ára gamall. Sigurbjörn Björnsson FIDE meistari og liðsmaður skáksveitar Fjölnis í efstu deild á Íslandsmóti skákfélaga kom svo símleiðis inn í miðjan þáttinn og ræddi við þá Helga og Kristján Örn. Umræðuefnið var meða annars fjölmennt, skemmtilegt og sterkt tveggja daga atskákmót taflfélaga sem lauk í Taflfélagi Reykjavíkur í gærkvöldi með sigri Víkingaklúbbsins og Íslandsmót skákfélaga en skáksveit Fjölnis trjónir þar nú eitt liða á toppnum með fullt hús stiga eftir að fyrri hluta keppninnar hefur farið fram. Ljóst er að baráttan um Íslandsmeistaratitilinn verður á milli skákdeildar Fjölnis, Taflfélags Reykjavíur og Víkingaklúbbsins en síðari hluti keppninnar verður tefldur dagana 29. febrúar til 3. mars á næsta ári.

Þáttinn má nálgast á Spotify.

 

Eldri þætti má nálgast hér á Spotity.

- Auglýsing -