Þrír ungir og efnilegir skákmenn sitja nú að tafli á SixDays mótinu í Búdapest í Ungverjalandi. Vignir Vatnar Stefánsson og Aleksandr Domalchuk-Jonasson taka þátt í lokuðum GM-flokki en Hilmir Freyr Heimisson teflir í lokuðum IM-flokki. Fimm umerðum af níu er nú lokið. Mótið fer fram á sex dögum eins og nafnið gefur til kynna og því eru þrír tvöfaldir dagar. Tvöföld umferð var á þriðjudag og miðvikudag og svo aftur á föstudag.
GM-flokkur

Vignir hóf mótið vel með sigri í fyrstu umferð. Á öðrum mótsdegi (þriðjudegi) komu tvö jafntefli í hús.
Í fyrri umferð dagsins hafði Vignir svart á Indverjann L R Srihari (2460). Vignir hafði svart og beitti Leningrad afbrigði hollenskrar varnar. Vignir tefdi þessa byrjun mjög mikið fyrir nokkrum árum en hún hefur að mestu legið í dvala undanfarið. Þrátt fyrir það virtist Indverjinn klár í slaginn og fékk fínt tafl úr byrjuninni og inn í miðtaflið. Vignir hafði alltaf eilítið verra tafl og varð að gefa peð þegar leið á skákina. Indverjinn pressaði með umframpeðið en Vignir varðist vel og hélt jafnteflinu.
Í seinni umferiðnni á þriðjudeginum varð jafntefli einnig niðurstaðan. Vignir bryddaði upp á ítalska leiknum en virtist mæta gríðarlega vel undirbúnum andstæðingi, hinum ungverska Balazs Pasztor (2360). Ungverjinn fékk betra eftir byrjunina en smátt og smátt vann Vignir sig inn í skákina en þó aldrei nóg til að ógna að neinu ráði. Jafntefli niðurstaðan.
Miðvikudagur Vignis hófst á tapi. Vignir valdi Pirc-vörn með svörtu og líklegast er ekki hægt að kenna byrjanavalinu um tapið þar sem svartur virtst fá þolanlega stöðu samkvæmt tölvuforritum. Það sem vantaði var kannski reynsla í stöðutýpunni og í kringum 20. leik fjaraði hratt undan svörtu stöðunni og Indverjinn Chakraborty Mayank (2368) tók öll völd á skákborðinu og lagði okkar mann að velli.
Vignir hafði hvítt í seinni skák miðvikudagsins en fékk aldrei snefil af möguleika á að tefla upp á neitt. Andstæðingur hans, Ungverjinn Bence Pribelsky (2394), virtist gríðarlega vel undirbúinn og snemma tafl var komin staða með mislitum biskupum sem engin leið var til að tefla til vinnings.
Niðurstaðan 2,5 vinningur eftir 5 umferðir. Á morgun mætir Vignir svo Aleksandr Domalchuk-Jonassyni. Skak.is er með ákveðna spá fyrir þá skák en sjáum hvað setur 😉

Líkt og Vignir er Aleksandr ekki að eiga neitt sérstakt mót. Sasha kom beint af HM ungmenna þar sem hann átti ágætis spretti en hefur ekki nýtt meðbyrinn það sem af er móti.
Í fyrri skák þriðjudagsins fékk Aleksandr allt að óteflandi stöðu gegn Ungverjanum Bence Pribelszky. Sá ungverski fékk snemma fljúgandi frumkvæði og sleppti því ekki!
Aleksandr hafði sigur í seinni skák þriðjudaginsins sem virtist lengi vel vera hörku „street-fight“. Sasha tók yfir stöðuna þegar hann náði gríðarlega góðum riddara á d4 reitnum og sigldi svo vinningnum heim.
Tap Aleksandr í fjórðu umerð er hægt að lýsa á ýmsan hátt. Slysalegt, klaufalegt eru orð sem koma upp í hugann. Aleksandr var með kolunnið tafl eiginlega alla skákina, einhvern veginn virtist svartur vera að grísa sig máttlausan í að ná jafntefli þegar óheppnin toppaði sig og Aleksandr lék sig í mát og tapaði!
Sasha fylgdi þessu erfiðara tapi eftir með góðu jafntefli gegn einum reyndasta keppandanum í flokknum.
Aleksandr hefur 1,5 vinning af 5 sem er undir væntingum en okkar maður á töluvert af heppni inni sem vonandi tekst að taka út á þessu móti!
IM-flokkur

Hjá Hilmi hafa skipst á skin og skúrir. Bæði þriðjudag og miðvikudag vann hann eina skák og tapaði hinni. Í öllum skákunum vann sá er stýrði hvítu mönnunum sigur. Ojas Kulkarni (2248) er greinilega „underrated“. Indverjinn tefldi þétta skák með hvítu og gaf Hilmi engan grið.
Hilmir kvittaði fyrir í seinni skákinni.
27.Bxg6+! var snaggarlegur hjá Hilmi og sigurinn fylgdi fljótlega í kjölfarið.
Á miðvikudeginum endurtók mynstrið sig, sigur og tap og hvítu mennirnir drjúgir. Ungverjinn David Horvarth tefldi þétt og vann sanngjarnan sigur.
Seinni skák miðvikudagsins var vel útfærð skák gegn Indverjanum Jain Rosh (2248). Hilmir fórnaði peði og hafði biskupaparið fyrir dýnamíska möguleika. Ef of snögg uppgjöf andstæðingsins var einn af þessum möguleikum heppnaðist herbragðið fullkomlega.
Hilmir hefur 2,5 vinning af 5 og getur og vill betur.
Íslensku strákarnir sýna vonandi hvað í þeim býr á endasprettinum!















