Tvíburabræðurnir Bárður Örn Birkisson (2254) og Björn Hólm Birkisson (2124) halda áfram baráttunni  á sterku og erfiðu opnu móti á Spáni, Elllobregat Open.

Bárður tapaði í sjöttu umferð gegn WGM Gu Xiaobing (2144) frá Kína. Næstur tvær skákir enduðu með jafntefli en þar átti Bárður í höggi við CM Koosha Jaferian (2201) frá Íran í sjöundu umferðinni og svo WIM Miruna-Daria Lehaci frá Rúmeníu.

Bárður hefur tvo vinninga fyrir lokaumferðina.

Björn Hólm gerði jafntefli í sjöttu umferð við stórmeistarann Ruslan Pogorelov (2271) frá Úkraínu og svo aftur jafntefli í sjöundu umferð við FM Jeevan Karamsetty (2280) frá Bandaríkjunum. Í áttundu umferð í dag varð hann þó að lúta í duk gegn FM Roman Le Goff (2278) frá Frakklandi.

Björn hefur 3 vinninga og hefur mætt titilhafa í öllum umferðunum!

Lokaumferðin fer fram á morgun og ljóst að bræðurnir koma reynslunni ríkari frá þessu móti!

Mótið er nokkuð fjölmennt en alls taka 210 skákmenn þátt á mótinu.  Bárður er númer 153 í styrkleikaröðinni en Björn númer 203. Mótið því augljóslega mjög sterkt með fjölda stórmeistara, þeirra stigahæstur Vladimir Fedoseev (2675). Stórmeistarar á mótinu alls 41 og titilhafarnir gríðarlega margir.

- Auglýsing -