Vignir Vatnar Stefánsson er Íslandsmeistari í hraðskák eftir að hafa unnið Friðriksmót Landsbankans í gær með fáheyrðum yfirburðum. Hann hlaut 12½ vinning af 13 mögulegum, sem er met.
Vignir er núna bæði Íslandsmeistari í skák og hraðskák. Hann gæti náð þrennunni ef hann vinnur Íslandsmótið í atskák sem fram fer á Selfossi þann 30. desember.
Jón Viktor Gunnarsson hafnaði í öðru sæti með 10 vinninga. Björn Þorfinnsson og Hilmar Freyr Heimisson deildu þriðja og fjórða sæti með 9½ vinning. Helgi Ólafsson og Helgi Áss Grétarsson höfnuðu í 5.-6. sæti með 9 vinninga.
Mótið var haldið í 20. skipti í dag, en í fyrsta skipti í nýjum höfuðstöðvum Landsbankans. Sex stórmeistarar tóku þátt en alls tóku 90 keppendur þátt.
Þorsteinn Stefánsson starfsmaður Landsbankans og fyrrverandi stjórnarmaður Skáksambandsins lék fyrsta leiknum fyrir Vignir Vatnar á efsta borði og opnaði mótið.

Vignir hóf mótið eins og stormsveipur og lagði hvern andstæðinginn að fætur öðrum að velli. Eftir að Vignir lagði Helga Ólafsson að velli í 5. umferð var hann orðinn einn efstur með fullt hús. Vignir náði fljótlega eftir þetta vinningsforskoti og það var ekki fyrr en í 8. umferð sem hann missti niður 100% skor með því að gera jafntefli við Björn Þorfinnsson.
Jón Viktor Gunnarsson var sá eini sem náði að hanga í skottinu á Vigni og var vinningi á eftir efsta manni en eftir tíu umferðir var munurinn oriðnn einn og hálfur vinningur. Vignir tryggði svo titilinn í 12. umferð með því að leggja Þröst Þórhallsson að vellir og hafði 2,5 vinning í forskot fyrir lokaumferðina. Ótrúlegir yfirburðir!

Líklegast er hinn svokallaði K-stuðull Vignis inni á chess-results stilltur eins og um væri að ræða kappskák þar sem hann er 10 en í hraðskák er hann 20. Vignir hækkar því líklegast um 40 elóstig fyrir þessa frammistöðu sem var upp á 2763 skákstig (performance rating).
Vignir átti margar þéttar skákir en var einnig ótrúlega úrræðagóður þegar hann lenti í vandræðum. Gegn Braga í 7. umferð náði hann svínslegu byrjanatrikki.
4…Dd6!? er lúmskur. Bragi var ekki var um sig og lék 5.c3? og hvítur er í vandræðum eftir 5…Dh6! vegna hótuninnar að leika …g5 og leppuninnar á h-línunni fær hvítur hartnær óteflandi stöðu.
Lokastaða efstu skákmanna:

Titilhafarnir röðuðu sér í efstu sætin og í sjálfu sér lítið óvænt þar. Flestir með 8 vinninga og yfir máttu vel við una.

Skrýtnir hlutir gerðust þegar kom að aukaverðlaunahöfum mótsins. Þeir vour valdir í eftirfarandi röð. Aðeins eru ein verðlaun voru í boði fyrir hvern og því varð til smá spírall.
- 2001-2200: Andrey Prudnkov
- U2000: Guðlaug Þorsteinsdóttir
- Kvennaverðlaun: Iðunn Helgadóttir (Guðlaug var efst)
- Strákur U16: Ingvar Wu Skarphéðinsson
- Stelpa U16: Guðrún Fanney Briem (Iðunn var efst)
- Öldungur 65+: Bragi Halldórsson (Helgi Ólafsson var efstur)

Iðunn Helgadóttir stóð sig frábærlega og fékk verðlaun fyrir að vera efst kvenna. Hún hækkar um heil 182,4 hraðskákstig fyrir árangurinn!

Ingvar Wu Skarphéðinsson fékk 7,5 vinning og fékk verðlaun sem efsti strákur 16 ára og yngri. Ingvar hækkar um 32 hraðskákstig.
Guðrún Fanney Briem stóð sig einnig vel í U16 stúlkna og hækkar um 182,4 hraðskákstig eins og Iðunn.

Guðlaug Þorsteinsdóttir endaði með 8 vinninga og var hæst þeirra með hraðskákstig undir 2000.
Stigaaflakóngurinn reyndist þó vera Þorsteinn Jakob Þorsteinsson sem hækkar um 220 hraðskákstig!
















