Kristján Örn Elíasson hefur um margra mánaða skeið stjórnað, ákaflega vel heppnuðum, vikulegum útvarpsþáttum, á miðvikudögum, á Útvarpi Sögu – sem heita; Við skákborðið.
Í síðustu viku mættu skákmeistararnir Sigurbjörn Björnsson og Magnús Pálmi Örnólfsson í settið í Skipholtinu. Í kynningu um þátttinn segir meðal annars:
Magnús og Sigurbjörn fóru yfir helstu reglurnar í slembiskák, töluðu um sterkasta slembiskákmót allra tíma sem haldið verður í Þýskalandi í febrúar á nýju ári. Þar munu etja kappi átta af sterkustu skákmönnum heims en þeir eru: Magnus Carlsen Noregi (2830), Fabiano Caruana Bandaríkjunum (2794), Ding Liren Kína (2780), Alireza Firouzja Frakklandi (2763), Vincent Keymer Þýskalandi (2738), Nodirbek Abdusattorov Úsbekistan (2727), Levon Aronian Bandaríkjunum (2723) og Gukesh Dommaraju Indlandi (2720). Aldeilis elo-skákstigin á ferð þarna!
Athygli vekur þó að núverandi heimsmeistari i slembiskák, en mótið fór fram í Reykjavík 2022, Hikaru Nakamura (2788) og fyrrverandi heimsmeistari í slembiskák Wesley So (2752) eru ekki á meðal keppenda. Bandaríkjamennirnir Nakamura og So eru skráðir #3 og #8 á stigalista FIDE yfir sterkustu skákmenn heims.
Sú nýbreyttni varð að þessu sinni að hlustendum gafst kostur á að hringja inn í þáttinn og svara nokkrum „laufléttum“ skákspurningum. Í verðlaun var bókin „Einvígi allra tíma“ eftir Guðmund G. Þórarinsson en hann var forseti Skáksambands Íslands þegar heimsmeistaraeinvígi Spassky og Fischer fór fram í Laugardalshöllinni í Reykjavík árið 1972.















