Landsliðsmaðurinn Hilmir Freyr Heimisson mætti til leiks sem langstigahæsti keppandinn á Meistaramóti Skákskóla Íslands sem jafnframt er Ungmennameistaramóts Íslands (u22). Hilmir hefur hingað til staðist pressuna og er með fullt hús eftir fjórar umferðir og verður að teljast ansi líklegur í að bæði verja titil sinn frá því í fyrra og vinna sér sæti í sterkum landsliðsflokki að ári!
Eftir fyrstu tvær umferðirnar var Hilmir með fullt hús ásamt Stephan Briem og Ingvari Wu Skarphéðinssyni. Hilmir mætti Stephan í uppgjöri tveggja stigahæstu manna í þriðju umferðinni. Hilmir stýrði hvítu mönnunum sem getur verið ansi stórt þegar mjótt er á mununum!
Stephan tók sér smá tíma í byrjuninni eins og hann væri ekki viss um hvaða nálgun hann ætti að taka með svörtu mönnunum. Úr hattinum kom einhverskonar Old-Indian uppstilling sem er traust en að sama skapi gefur hvítum nokkurn veginn meira og minna frítt spil. Hilmir fékk alltaf meira rými en engu að síður virtist svartan staðan hlutlægt í algjörlega fínum málum. Vandamál svarts fólst líklega í því að erfiðara var að finna góða eða nothæfa leiki og stöðu Stephans tók að hraka fljótt í lokin og rýmið sagði til sín!
Ingvar Wu tókst að fylgja Hilmi Frey og ná fullu húsi. Það var þó engan veginn átakalaust þar sem Sigurbjörn Hermannsson tefldi skák þeirra lengst af eins og herforingi. Sigurbjörn hefur teflt gríðarlega vel á þessu móti og sýnt að hann er í hraðri og góðri framför!
Sigurbjörn tefldi miðtaflið vel og neyddi Ingvar í skiptamunsfórn. Oft getur svartur með góðu fórnað skiptamun í þessum afbrigðum á svart en skiptamunur er alltaf skiptamunur og Sigurbjörn hafði betra tafl með hvítu. Eitthvað reynsluleysi fór þó að segja til sín og peð fóru að falla í valinn og taflið fór að snúast til Ingvars og Sigurbjörn lagði niður vopn í endataflinu.
Hilmir og Ingvar voru því í oddastöðu eftir þrjár umferðir með fullt hús.

Hilmir og Ingvar voru því einu skákmennirnir með fullt hús eftir þrjár umferðir og ljóst að innbyrðist viðureign þeirra í fjórðu umferð yrði ansi mikilvæg fyrir framvindu mótsins.
Ingvar hafði hvítt og tefld var Catalan-byrjun. Gríðarlega vinsæl byrjun þessi dægrin og Ingvar gaf ekki tommu eftir, hvorki í byrjun né miðtaflinu. Hilmir þurfti að hafa fyrir öllum sínum ákvörðunum og hefur vafalítið ekki liðið vel lengst af skákar. Það var ekki fyrr en eftir 40. leik sem að Hilmir tókst loks að fá færi og snúa taflinu sér í vil. Mikilvægur sigur fyrir Hilmi sem fer langleiðina með að tryggja honum titilinn. Að sama skapi gríðarlega flott og þétt skák hjá Ingvari sem lengst af setti mikla pressu á Hilmi.
Stephan náði að halda dampi með sigri í fjórðu umferð og er vinningi á eftir Hilmi. Stephan tapar hinsvegar alltaf baráttu í oddastigum eftir tap í innbyrðis viðureign. Sigurbjörn Hermannsson hefur að mörgu leiti verið stjarna mótsins með góðri taflmennsku og úrslitum en verður því miður að hætta leik með 3 vinninga af 4 vegna utanfarar.
Hilmir virðist því eiga sigurinn og landsliðssætið nokkuð víst en ljóst er að framundan eru spennandi og jafnar skákir og mikil barátta á lokadegi mótsins!
Vert er að hrósa Akureyringnum Markúsi Orra Óskarssyni. Flugsamgöngur gengu ekki í gegn í lok vikunnar og því þurfti að fara landleiðina í slagviðri til þess að fá hörkuskákir um helgina. Þetta er akkúrat hugarfarið sem menn þurfa að hafa til að bæta sig í skák eða hverju svosem þeir taka sér fyrir hendur!
Á sunnudeginum klárast mótið með tvöfaldri umferð. Hilmir hefur hvítt á Gunnar Erik og mótið gæti klárast undir eins ef skákin á öðru borði á milli Ingvars og Stephans endar með jafntefli. Vonandi helst þó spennan fram í lokaumferð en engu að síður virðist Hilmir eiga sigurinn vísan ef mið er tekið af elóstigum og almennri skynsemi!
- Skákir á lichess (með delay)
- Twitch streymi frá efsta borði
- Mótatilkynning og upplýsingar (verðlaun, dagskrá o.fl.)
- Mótið á Chess-Results















