Hið árlega jólahraðskákmót Skákfélags Akureyrar var haldið í gær, 27. desember við glæsilegar aðstæður á því fallega veitingahúsi LYST í Lystigarðinum. Alls mættu 18 keppendur til leiks og fór mótið allt fram í sönnum jólaanda þótt hart væri barist. Kynslóðirnar létu sig ekki heldur vanta og skildu rúm sjötíu ár að elsta og yngsta keppandann.
Eins og á öðrum hraðskákmótum nú í haust fékk Hörgsveitungurinn Símon Þórhallsson flesta vinninga, eða átta í níu skákum. Jafnt var í toppbaráttunni lengi framanaf og það var ekki fyrr en í lokaumferðunum sem sigur Símonar fór að blasa við. Hann bætir nú þessum titli við sigur í startmótinu og hausthraðskákmótinu.
| 1 | FM | Thorhallsson Simon | 2137 | 8 |
| 2 | FM | Sigurpalsson Runar | 2210 | 7 |
| 3 | Karlsson Mikael Johann | 2024 | 6 | |
| 4 | IM | Karason Askell O | 2015 | 5½ |
| 5 | Olafsson Smari | 1847 | 5½ | |
| 6 | Bjorgvinsson Andri Freyr | 2113 | 5½ | |
| 7 | CM | Halldorsson Halldor | 2176 | 5 |
| 8 | Oskarsson Markus Orri | 1399 | 5 | |
| 9 | Kristinardottir Elsa Maria | 1921 | 4½ | |
| 10 | Eiriksson Sigurdur | 1809 | 4½ | |
| 11 | Hedinsson Godi | 1413 | 4½ | |
| 12 | Arnalds Stefan | 1786 | 4 | |
| 13 | Vilhjalmsson Hilmir | 1207 | 4 | |
| 14 | Jonsson Stefan G | 1677 | 4 | |
| 15 | Theodoropoulos Dimitri | 0 | 3½ | |
| 16 | Steingrimsson Karl Egill | 1677 | 3½ | |
| 17 | Asgrimsson Valur Darri | 1329 | 1 | |
| 18 | Theodoropoulos Iraklis Hrafn | 0 | 0 |
- Auglýsing -
















