Hannes að tafli í Batumi 2019. Mynd: GB

Tvöfaldur dagur var í Marianzke Lazne þar sem Hannes Hlífar Stefánsson (2496) teflir í lokuðum GM flokki sem er hluti af Marienbad Open í Tékklandi. Fjórða og fimmta umferð voru tefldar í dag og gerði Hannes jafntefli í báðum skákunum.

FM Jakub Kusa (2350) frá Tékklandi var andstæðingur Hannesar í fyrri umferðinni. Hannes  hafði svart og komst nokkuð vel frá byrjuninni og var aldrei í neinni hættu. Hann reyndi svo að pressa í endataflinu en hafði ekki erindi semerfiði þrátt fyrir fín færi.

Hér lék Hannes 62…d4? sem leiddi til jafnteflis. Hér hefði Hannes getað leikið 62…Be2! sem setur upp leppun sem vinnur lið. Líklegast hefur Hannes verið sleginn skákblindu, hvítur á 63.Hb3 þar sem 63…Ka2 er svarað með Hb2+ en svartur má leika 63…Kxa4! sem lítur illa út vegna fráskákar en ef hvítur fráskákar er biskupinn á d1 oní og fjöldakaup á d1 gefa unnið peðsendatafl á svart.

Hannes hafði svo hvítt á FM Yamac Samani (2380) frá Tyrklandi í seinni umferðinni og var greinilega þreyttur eftir fyrri skákina og bauð snemma jafntefli sem var þegið.

Hannes fær svart á GM Petr Neumann (2398) frá Tékklandi í sjöttu umferðinni á morgun.

- Auglýsing -