Úzbekinn baráttuglaði Nodirbek Abdusattorov hleypti toppbaráttunni í Sjávarvíkinni í bál og brand með því að leggja Anish Giri að velli! Dommaraju Gukesh heldur áfram að keyra sig í gang og vann sína þriðju skák í röð og efstur ásamt ofantöldum.

Abdusattorov hafði hvítt gegn Giri og Giri ákvað að beita Petroffs vörn með svörtu. Snemma tafl virtist sem hvítur ætlaði sér í kóngssókn en í miðtaflinu skipti hann um strategíu og náði sér í góðan riddara gegn biskup og stjórnaði hvítu reitunum á borðinu. Upp kom endatafl þar sem fjarlægur frelsingi Abdusattorov réði úrslitum.

Alþjóðlegi meistarinn og Fjölnismaðurinn Robert Ris leit á þessa skák á YouTube:

Gukesh er eins og áður sagði á góði skriði. Hann vann sinn þriðja sigur í röð og nú gegn heimamanninum Max Warmerdam. Gukesh varðist frumkvæðistilburðum Hollendingsins í byrjun og náði að verja umframpeð sitt fram í endatafl. Að lokum gaf hann peðið en fékk í staðinn aktífan hrók á sjöundu reitaröð sem skilaði hvítum hróksendatafli peði yfir. Svartur hefði líklega getað varist en tókst ekki í þetta skiptið.

Giri, Abdusattorov og Gueksh hafa nú 4,5 vinning af 7. Þrátt fyrir tap í umferðinni er Alireza aðeins hálfum vinningi frá efstu mönnum með 4 vinninga ásamt Indverjunum Vidit og Pragganandhaa.

Salem A R Saleh er orðinn efstur í Áskorendaflokki með 5 vinning, hálfum vinningi á undan þremur skákmönnum sem hafa 4,5 vinning.

Á morgun komið að áttundu umferð og næsti frídagur á mánudaginn.

- Auglýsing -