Vikan í skák 22-28. janúar er hér tekin fyrir! Skákvikan er glænýr liður á Skak.is þar sem farið er yfir nýliðna viku í skákinni, fréttir og úrslit af innlendum sem erlendum vettvangi tekin fyrir…allt á léttu nótunum!

Páll hér með Birni Ívari
  • Skákdómarinn Páll Sigurðsson sýndi hvað í honum býr og varð hlutskarpastur á Skákkvöldi TG mánudagskvöldið 22. janúar. Páll hlaut 6 vinninga af 6 mögulegum! Athyglisvert er að 80% keppenda voru í aldursflokknum 50+!
Örn Leó að tafli. Mynd: IEB

 

  • Magnus Carlsen hlakkar til móts í Chess960 (Fischer slembiskák) með klassískum tímamörkum sem fer fram í febrúar! Sjá einnig tilkynningu chess.com

 

Fullt hús Gauti Páll er efstur eftir fjórar umferðir á Skákþingi Reykjavíkur. — Ljósmynd/Ómar Óskarsson
  • Gauti Páll Jónsson er ekki bara í stuði á Skákþingi Reykjavíkur. Gauta finnst greinilega mjög gaman að tefla og tók Fimmtudagsmót TR með fullu húsi, 7 vinningar af 7 mögulegum!
Markús Orri að tafli á unglingamóti

Hinn ungi Markús Orri Óskarsson fer vel af stað á Skákþingi Akureyrar og er efstur með fullt hús eftir þrjár umferðir!

  • Það er alltaf gaman að hlusta á Magnus Carlsen. Hann var í góðu viðtali við Chess.com í vikunni. Magnus virðist ekki líklegur til að reyna aftur við Heimsmeistaratitilinn í klassískri skák eins og senan er núna, breytinga er þörf til að Magnus myndi hafa áhuga á að reyna aftur við titilinn. Magnus er spurður út í svindl almennt og hvað sé til ráða, áhugavert viðtal!
Í eldlínunni Hans Niemann við taflið á síðasta Reykjavíkurskákmóti. — Morgunblaðið/Ómar Óskarsson
Gukesh að tafli. Mynd: Heimasíða mótsisn/David Llada.
  • Gukesh er að standa sig vel í Wijk aan Zee og er í toppbaráttunni. Chessbase India kíktu í heimsókn til hans rétt fyrir mót þar sem litið var á stúderingaaðstöðu hans í Chennai.

 

  • Bodhana sem kemur á Reykjavíkurskákmótið tók þátt í áhugaverðu einvígi gegn gömlum breskum meistara. Bodhana er aðeins 8 ára og er hreint ótrúlega góð…vægast sagt! Sjón er sögu ríkari!

  • Vladimir Kramnik heldur áfram baráttu sinni gegn svindli og vill láta rannsaka allskonar menn. Það nýjasta Le Quang Liem. Enn notast Kramnik við chess.com accuracy og það sem er líklegast verra er að hann notar vafalítið ekki meira en svona depth 18. Liem var N.B. heimsmeistari í hraðskák 2013, frábær skákmaður og hraðskákmaður.

  • Spurning er hvort að Pragganandhaa hafi orðið fyrsti skákmaðurinn til að leggja ríkjandi heimsmeistara karla og kvenna á sama mótinu? Pragga vann gegn Ding Liren og Ju Wenjun í Wijk aan Zee.

Róbert Lagerman

 

  • Gauti Páll opnaði nýjan lið á Skak.is, föstudags-tímavélina þar sem skoðaðar eru gamlar greinar úr Tímaritinu Skák. Fyrst á dagskrá var grein Jóns L. Árnasonar þar sem hann lýsir tímabili þar sem hann tefldi 50 skákir í röð á ferðalagi um heiminn.

 

  • Baráttan um hver sé stigahæsti Indverjinn heldur áfram. Vidit tók yfir sætið á laugardeginum en Pragga var nýbúinn að komast upp fyrir Anand.

Guðmundur Kjartansson að tafli.
  • Stórmeistarinn Guðmundur Kjartansson hefur sett inn sitt fyrsta vídeó á nýrri YouTube-rás. Gummi kallar hana „GM Chess Endgames“. Ef það er eitthvað sem Gummi kann þá eru það endatöfl enda vill það oft verða þannig að lengstu skákir á mótum eru einmitt hjá Guðmundi. Hann hélt t.a.m. tvær umferðir í röð hrók gegn hrók og riddara á síðasta EM landsliða! Í fyrsta myndbandinu skoðar Gummi endatafl Petrosian gegn Friðrik Ólafssyni þar sem hrókur og tvö peð pressa gegn hrók og einu peði.
Undir lárviðarsveignum 17. heimsmeistarinn, Ding Liren, við verðlaunaafhendinguna. Til hliðar við hann er forseti FIDE, Arkady Dvorkovich. — Ljósmynd/Steve Bonhagen
  • Ding Liren heimsmeistari olli miklum vonbrigðum á Tate Steel mótinu. Hann virkaði ryðgaður og augljóst eftir því sem leið á mótið að hausinn var ekki til staðar. Hann endaði með 6 vinninga af 13 og í lokin var hann farinn að klára snemma með jafnteflisskákum sem tóku stuttan tíma, eins og hann hvorki vildi vera á staðnum né vera að tefla. Ding hafði meira að segja heppnina með sér í annarri af tveimur sigurskákum hans.

Eftir 52…Hxh2? hjá Ding í vinningsstöðu kom 53.Ha5+ Ke6 54.Hxe5! og hvítur bjargar sér út af patt-trikkinu. Warmerdam lék svo af sér í dauðu jafntefli.

  • Íslandsmót stúlknasveita var gríðarlega vel sótt. Yfir 90 stelpur mættu til leiks og kepptu í þremur aldursflokkum. Landakotsskóli vann yngsta flokkinn, Smáraskóli miðstigið og Rimaskóli tók efsta stigið.

 

  • FIDE hefur tilkynnt hvernig hægt er að vinna sér rétt í Áskorendamótið 2026. Nokkrar breytingar hafa orðið. Fyrsta breytingin er að stigasætið er nú meðaltal 6 mánaða til að koma í veg fyrir ruglið sem átti sér stað í lok árs á ýmsu mótaflokki Firouzja og fleiri. Seinna atriðið er að sá er tapar heimsmeistaraeinvíginu á ekki lengur gefins sæti í Áskorendamótið. Aukasætið fyrir í staðinn á FIDE stigamótaröðina og sá sem tapar einvíginu fær það metið inn á mótaröðina.’

 

  • Það er Wei Yi sem vinnur Tata Steel 2024 eftir stórskemmtilegt mót með glimrandi hressri taflmennsku! Bráðabana þurfti til þar sem Wei Yi lagi Abdusattorov í undanúrslitum og svo Gukesh í úrslitunum.

- Auglýsing -