Gauti Páll Jónsson og Dagur Ragnarsson eru í sérflokki á Skákþingi Reykjavíkur og munu berjast um titilinn Skákmeistari Reykjavíkur í lokaumferðinni næstkomandi Sunnudag. Báðir unnu þeir sínar skákir í áttundu umferðinni og Dagur vann auk þess frestaða skák í toppbaráttunni gegn Ingvari Wu á þriðjudeginum. Það stefnir allt í æsispennandi lokaumferð!

Gauti Páll hafði hvítu mennina gegn Ingvari Wu á efsta borði. Ingvar tefldi byrjunina full passíft og Gauti fékk betra tafl. Gauti hefði líklegast á einhverjum tímapunkti átt að leika biskup sinum til e4 til að koma í veg fyrir farsæla liðsskipan svarts á drottningarvæng. Sá leikur kom líklega of seint og þó að hrókur svarts á b7 virki asnalegur var Ingvar fljótur að laga hann.
Líklegast fékk Ingvar eitthvað betra í kjölfarið með stjórn á d-línunni en var líklegast of fljótur að „redúsera primitíft“ eins og gömlu meistararnir hefðu líklegast kallað það. Taflið jafnaðist aftur en þá lék Ingvar skelfilega af sér.
32…Kd7?? var tapleikur 33.c4 og hrókurinn á sér enga undankomuleið. 33…Hd4 34.Bc3 Hxc4 35.b3 og hvítur vinnur skiptamun og skákina!

Þessi úrslit þýddu eiginlega að Dagur varð að vinna sína skák með svörtu gegn landsiðsmanninum Hilmi Frey. Vandamálið þar var að Hilmir tefldi af fítonskrafti og Dagur varð eiginlega að feta algjört einstigi til að tapa ekki. Báðir keppendur viðurkenndu eftir skákina að þeir héldu að hvítur hlyti að hafa staðið til vinnings á einhverjum tímapunkti. Taugalaus tölvuforrit voru hinsvegar ósammála og töldu að svartur hefði aldrei haft verra. Til þess að „sanna“ það þurfti Dagur hinsvegar ítrekað að finna frábæra varnarleiki, sem honum tókst! Mikill vinnusigur hjá Degi sem hann vann svo sannarlega fyrir!

Tvíburarnir Björn Hólm og Bárður Örn Birkisson mættust á þriðja borði. Mikilvæg skák fyrir báða upp á framhaldið ef þeir ætluðu að blanda sér í baráttuna. Ekki var teflt upp á neitt jafntefli í þessari skák, Sikileyjarvörn og „enginn er annars bróðir í leik “ var þema dagsins.
Bárður hélt að hann væri að fá þægilegt „stöðulegt bind“ þegar hann lék 21…Bf6?? sá leikur var hinsvegar tapleikur og Björn missti ekki af 22.e5! og svartur tapar manni. Bárður gafst upp.

Jóhann Ingvason mjakaði sér upp á efstu borð í lokaumferðinni með því að leggja þáttastjórnandann Kristján Örn að velli. Jóhann tefldi þétt og massífur riddari hans á c3 stjórnaði taflinu í miðtaflinu og stýrði vinningnum heim.
Helstu úrslit 8. umferðar

Ýmis athyglisverð úrslit í umferðinni. Mikael Bjarki nær í massífan sigur á Guðna Stefáni sem er gríðarlega traustur skákmaður. Iðunn leggur Júlíus Friðjónsson að velli í kynslóðabaráttu.

Markús Orri og Pétur Úlfar ná einnig góðum úrslitum í sínum skákum!

Ljóst er að Dagur og Gauti berjast um titilinn. Dagur virðist standa betur að vígi þegar kemur að stigaútreikningum. Í lokaumferðinni fær Dagur líklegast hvítt gegn Birni Hólm en Gauti Páll svart gegn Jóhanni Ingvasyni. Fræðilegur möguleiki er á að fjórir verði efstir og jafnir en ef annar af Gauta eða Degi tapar ekki er sá hinn sami í góðum málum!
Gauti, Benedikt, Ingvar Wu og Iðunn eru öll að hækka vel á stigum, stigagróðinn virðist liggja lóðbeint í Faxafen 12 til Taflfélagsins!
Ekki missa af lokaumferðinni næstkomandi Sunnudag þar sem spennan verður gríðarleg!
- Mótsfrétt með tímamörkum, verðlaunum, tiebreaks o.fl.
- Skákir á livecloud
- Skákir á lichess
- Mótið á chess-results

















