Önnur umferð á Íslandsmóti kvenna fór fram í kvöld í Siglingaklúbbnum Ými. Mögulega stefnir aftur í baráttu þeirra Olgu Prudnykovu og Lenku Ptacnikovu um Íslandsmeistaratitilinn. Þær hafa báðir fullt hús 2 vinninga úr umferðunum tveimur. Dýrkeypt endataflsmistök kostuðu ansi mikið í umferð kvöldsins!

Átta þátttakendur eru á Íslandsmóti kvenna og munu þær tefla sjö umferðir, allar við alla!

Jóhanna var fyrst að klára gegn Iðunni. Segja má að hér hafi verið á ferðinni pökkun. Jóhanna fékk allt sem svartur vill fá úr þessari uppstillingu og Modern-byrjun Jóhönnu 1…g6 endaði sem rjóma-Dragondorf stöðutýpa. Svartur hafði c-línuna, sterkan g7 biskup og eftir 14…Ra4 var hvítur nánast varnarlaus.

Lenka náði góðum sigri á Tinnu. Í miðtaflinu var mikil pressa á e-línunni hjá Lenku. Þegar fór að vanta menn í svörtu stöðuna var frekari barátta orðin vonlaus og Lenka með fullt hús.

Guðrún Fanney og Veronika Steinunn tefldu hörku baráttuskák. Guðrún hafði alltaf eitthvað frumkvæði en Veronika náði að jafna taflið í miðtaflinu. Í endataflinu tók Guðrún aftur frumkvæðið og vann peð. Það hefði þó ekki átt að duga.

35…Kc4?? reyndist vera tapleikur. Svartur á einfaldlega að kong kóngnum að peðum sínum með …Ke5 eða …Ke6 og ólíklegt að hvítur geti unnið með 3 gegn 2 á kóngsvængnum í þessu endatafli. Þess í stað fékk Guðrún sigurinn á silfurfati…en átti það kannski inni eftir gærdaginn!

Olga virtist í fyrstu ætla að máta Elsu fljótlega eftir byrjunina.

Hér var 22.Dh5! freistandi og tölvurnar gefa +4 á hvítt! Olga drap fyrst á d5 sem er ekki jafn gott.

Upp kom endatafl sem svartur á líklega að halda.

39…g5? var algjör óþarfi og gaf hvítum kost á að skorða svarta kónginn. 39…Kf7 og svartur ætti að verjast.

Tapið kom þó ekki fyrr en hér:

43…gxh4?? var tapleikurinn. Hvítur drepur 44.Hxh4 og hótar að drepa á f4 með skák. Þannig fóru leikar og hvítur fékk unnið peðsendtafl. Svartur hefði getað leikið 43…Kg8 og jafnvel 43…g4+. Málið er að f- og h-peð saman nægja ekki til vinnings ef svartur verst rétt.

Staðan:

Þriðja umferðin af sjö fer fram á morgun og hefst klukkan 18:00. Teflt er á hverjum degi og mótinu lýkur á sunnudaginn.

 

- Auglýsing -