Strax og Íslandsmóti skákfélaga lauk um þarsíðustu helgi settist meistaraflokksráð Skákdeildar Breiðabliks niður til að útbúa fimm ára stefnumörkun og áætlun fyrir okkar ungu og öflugu skákmenn.
Sjá nánar hérna: https://docs.google.com/document/d/1NdRGTFQki_P7NsHdkM1-nKCKa5RcIJWygO6axKowbTU/
Í dag telur U25 hópurinn (plús tveir í U16 sem stefna hraðbyri þangað) tólf iðkendur og við sjáum fram á að hópurinn stækki jafnt og þétt næstu árin.
Skákdeild Breiðabliks er á sínu tólfta ári, stofnuð haustið 2012. Þá var 2003 árgangurinn, sem núna er kjarninn í meistaraflokksliði deildarinnar, níu ára gamlir.
Í dag eru þeir á 21.aldursárinu og gleðilegt hve breiður og öflugur hópurinn er. Mjög góð fyrirmynd fyrir yngri iðkendur sem stefna þangað.
Við höfum reynt að fylgja síbreikkandi aldri og getu iðkenda til að allir fái sín verkefni og stuðning. Núna eru verkefni deildarinnar að mestu þrískipt:
- U16 daglegar æfingar
- U25 meistaraflokksstarf
- Meistaraflokksmenn eldri en 25 ára
U16 starfið er nokkuð stöðugt og góð reynsla komin á það. Björn Ívar Karlsson er yfirþjálfari og æfingar eru daglega.
Núna er búið að þróa U25 starfið með nýju áætluninni og stefnumörkuninni. Hópurinn æfir einu sinni viku undir stjórn Hilmis Freys Heimissonar.
Við þurfum lítið að hafa fyrir iðkendum eldri en 25ára, þeir eru góður stuðningur fyrir unga og upprennandi skákmenn.
Framtíðin er björt fyrir Skákdeild Breiðabliks og það er gott að tefla í Kópavogi
Halldór Grétar Einarsson

















