Fjölmargir íslenskir skákmenn eru að standa sig vel á alþjóðlega Reykjavíkurskákmótinu sem er í boði Kviku eignastýringar og Brim. Héðinn Steingrímsson er einn Íslendinga með fullt hús að loknum þremur umferðum eftir að hafa lagt Braga Þorfinnsson að velli í þriðju umferð.

Björn hefur byrjað nokkuð vel!

Of snemmt er að æsa sig yfir einhverjum frammistöðum en þó er jákvætt að Héðinn sé með fullt hús þrátt fyrir að hafa tvisvar haft hvítt. Fjölmargir íslenskir skákmenn mega vel við una með 2,5 vinning af 3 mögulegum og nokkrir þeirra að tefla vel yfir „stigagetu!“. Þeir sem hafa 2,5 vinning eru: Vignir Vatnar Stefánsson, Guðmundur Kjartansson, Þröstur Þórhallsson, Aleksandr Domalchuk-Jonasson, Björn Þorfinnsson, Jósef Ómarsson, Hrund Hauksdóttir og Verónika Steinunn Magnúsdóttir!

Staðan að loknum þremur umferðum…

Framundan er fjórða umferð sem hefst klukkan 15:00 á sunnudaginn!

Ýmsar spennandi skákir í fjórðu umferð og línur gætu tekið að skýrast fljótlega!

Myndaalbúm frá 2. umferð (Hallfridur Sigurdardottir)

Myndaalbúm frá 3. umferð (Hallfridur Sigurdardottir)

Hægt er að sjá skákir með 15 mínútna töf á eftirfarandi stöðum:

Fjöldi streymara/áhrifavalda eru mætt til leiks eins og í fyrra að sína frá sínum skákum.

- Auglýsing -