Það ætlar að ganga illa fyrir efstu menn að slíta sig frá hópnum á alþjóðlega Reykjavikurskakmótinu í boði Kviku eignastýringar og Brim. Eftir sjöttu umferðina eru hvorki fleiri né færri en ellefu skákmenn efstir og jafnir með 5 vinninga af 6 mögulegum. Eini Íslendingurinn í þeim hópi er Guðmundur Kjartansson.
Guðmundur var að einhverju leiti heppinn með pörun í 6. umferðinni en þar mætti hann Englending með 1900 stig sem hefur verið að standa sig vel, vann t.a.m. glæsilega skák í fjórðu umferð gegn FIDE meistara. Þrátt fyrir góðan árangur framan af móti reyndist Guðmudnur of stór biti fyrir Ethan Sanitt (1914).
Héðinn tapaði erfiðri skák gegn stigahæsa manni mótsins Bogdan-Daniel Deac þar sem hann lenti í langri og strangri vörn. Hilmir Freyr átti góðan dag, tefldi við tvo tyrkneska stórmeistara og fékk 1,5 vinning…gerði stutt jafntefli við Yilmazerli í 6. umferðinni. Jóhann Hjartarson hefur einnig 4,5 vinning en var í dauðafæri að komast í hóp efstu manna, missti vænlegt tafl í jafntefli. Loks er Hannes Hlífar einnig með 4,5 vinning en stendur illa á oddastigum með tvær hjásetur.

Íslendingarnir voru sex á topp 30 fyrir umferðina en fækkar í aðeins þrjá eftir slakan dag heilt yfir.

Guðmundur mætir goðsögninni Ivanchuk í 7. umferðinni en hann varð einmitt 55 ára í dag!


Myndaalbúm 6. umferðar (Hallfríður Sigurðardóttir)
Hægt er að sjá skákir með 15 mínútna töf á eftirfarandi stöðum:
Fjöldi streymara/áhrifavalda eru mætt til leiks eins og í fyrra að sína frá sínum skákum.
- Anna Cramling sýnir á Twitch og Youtube þar sem Pia Cramling skýrir.
- Botez systurnar Alexandra og Andrea eru líka beint á Twitch og á Youtube og Jon Ludvig Hammer er að lýsa.
- WGM Dina Belenkaya er á Twitch og á Youtube og vinkona hennar Julesgambit lýsir
- Zachary Saine „The Chessnerd“ er á Twitch
- Tallulah Roberts „Lularobs“ er á Twitch
- Anna-Maja Kazarian er á Twitch og á Youtube
- Alexandra Prado er á Twitch















