Héðinn Steingrímsson er enn á toppnum á alþjóðlega Reykjavíkurskákmótinu sem er í boði Kviku Eignastýringar og Brim. Héðinn mætti pólska alþjóðlega meistaranum Jakub Seemann (2451) í umferðinni. Jafntefli var niðurstaðan í stuttri skák þar sem Seemann var endaði með 1:32 á klukkunni, var greinilega mjög vel undirbúinn. Mögulega færi sem Héðinn gæti séð eftir því prógrammið á bara eftir að þyngjast eftir því sem líður á.
Mikið var um jafntefli á efstu borðum og það var aðeins Frakkinn Jules Moussard sem bættist í hópinn með Héðni og Seemann. Því miður lagði Frakkinn okkar mann, Vignir Vatnar Stefánsson að velli. Vignir hafði fína stöðu samkvæmt tölvunum en reyndir skákmenn greindu að staða hans væri mun erfiðara að tefla auk þess sem Jules setti tímapressu á Vigni. Tölvuforritin töldu stöðu svarts í þokkalegu standi fram að 33…Kc6? sem hugnaðist ekki tölvunum.
Heilt yfir var umferðin ekkert sérstök, Guðmundur gerði þó traust jafntefli við Emre Can og hefur 4 vinninga. Jóhann Hjartarson náði sér einnig í sinn fjórða vinning. Hilmir Freyr Heimisson bættist einnig í þann hóp en hann mætti líka tyrkneskum stórmeistara og gjörsamlega valtaði yfir hann! Hilmir fórnaði manni og kóngur hvíts varð strandaglópur á miðborðinu og lifði ekki af örvæntingafullu flóttatilraun í lokin!

Seinni umferð dagsins framundan og sex Íslendingar enn á topp 30.

Myndaalbúm 5. umferðar (Hallfríður Sigurðardóttir)
Hægt er að sjá skákir með 15 mínútna töf á eftirfarandi stöðum:
Fjöldi streymara/áhrifavalda eru mætt til leiks eins og í fyrra að sína frá sínum skákum.
- Anna Cramling sýnir á Twitch og Youtube þar sem Pia Cramling skýrir.
- Botez systurnar Alexandra og Andrea eru líka beint á Twitch og á Youtube og Jon Ludvig Hammer er að lýsa.
- WGM Dina Belenkaya er á Twitch og á Youtube og vinkona hennar Julesgambit lýsir
- Zachary Saine „The Chessnerd“ er á Twitch
- Tallulah Roberts „Lularobs“ er á Twitch
- Anna-Maja Kazarian er á Twitch og á Youtube
- Alexandra Prado er á Twitch















