Reykjavíkurskákmótið, sem er í boði Kviku eignastýringar og Brims, verður framhaldið í dag með með 5. og 6. umferð. Fyrri umferð hefst dagsins hefst núna kl. 9 en sú síðari kl. 16.

Í fyrri umferð dagsins tefla Íslendingar á pallinum. Héðinn Steingrímsson (2477) teflir við pólska alþjóðlega meistarann Jakub Seeman (2451). Þeir eru einu tveir sem hafa fullt hús. Vignir Vatnar Stefánsson (2477) mætir franska stórmeistaranum Jules Moussard (2621) sem er fjórði í stigaröð keppenda.

Auk Vignis hafa Guðmundur Kjartansson (2465) og Björn Þorfinnsson (2353) 3½ vinning. Þeir mæta sterkum stórmeisturunum.

Eftirfarandi viðureignir Íslendinga eru í beinni í dag.

Skákskýringar Hjörvar Steins Grétarssonar byrja um kl 18.

Rétt er að minná á veitingastaðinn Hnoss sem er með sértlboð fyrir skák- og skákáhugamenn. Ljúffengt kvöldverðartilboð á milli 18 og 20 á 3.990 kr. og drykkir á skák-tilboði.

Fjöldi streymara/áhrifavalda eru mætt til leiks eins og í fyrra að sína frá sínum skákum.

- Auglýsing -