Héðinn Steingrímsson er með fullt hús, 4 vinninga af 4 mögulegum, á alþjóðlega Reykjavíkurskákmótinu sem er í boði Kviku Eignastýringar og Brim. Aðeins einn keppandi til viðbótar hefur náð þeim árangri. Heilt yfir var dagurinn nokkuð góður fyrir Íslendinga og nokkrir stórmeistarar lágu í valnum eftir baráttu við heimamenn!
Héðinn mætti serbnesku landsliðkonunni Teodoru Injac (2434) með svörtu. Sú serbneska vildi tefla hvasst með því að tefla Benkö-bragð með skiptum litum og fórnaði peði. Framhaldið tefldi hvítur ekki af nægjanlegum krafti og Héðinn náði að stilla upp illviðráðanlegum varnarvegg með skemmtilegri riddaratilfærslu, Rf6-d7-b8-a6. Héðinn hélt stjórn á stöðunni og náði í sinn fjórða vinning í jafn mörgum skákum.
Sá eini sem hefur náð að fylgja Héðni eftir er pólski alþjóðlegi meistarinn Jakub Seemann (2451). Seemann vann fínan sigur á Maximillian Lu frá Bandaríkjunum. Héðinn mætir Seemann í 5. umferðinni og hefur hvítt.
Ekki langt á eftir koma þeir Vignir Vatnar Stefánsson, Guðmundur Kjartansson og Björn Þorfinnsson sem allir eru að eiga fín mót.
Vignir mætti pólska ungstirningu Patryk Cieslak (2325), 13 ára strák, sem stóð sig vel á mótinu í fyrra og byrjaði heldur betur vel í ár með jafntefli gegn GM Can frá Tyrklandi og sigri á GM Cornette frá Frakklandi! Alls ekki auðveld pörun fyrir Vigni!
Vignir hafði hvítt og beitti Catalan-byrjun. Vignir fórnaði peði í byrjuninni fyrir frumkvæði en eftir stórskemmtielgar taktískar sveiflur róaðist staðan og nokkuð jafnt endatafl kom á borðið. Vignir hafði hrók og biskup gegn hrók og riddara og líklega gerði svartur strategísk mistök með því að skipta upp á hrókum. Eiginleikar biskups Vignis með peð á báðum vængjum nutu sín betur án hrókanna og náði Vignir að kreysta fram skemmtilega leikþröng í endataflinu.
52.b4! var skemmtilegur og skömmu síðar var svartur í leikþröng eftir Ba3-c1-e3-f2-c5
Guðmundur gleypti peð með svörtu gegn stigalægri andstæðingi sínum og setti þannig smá pressu á hann. Hollenski alþjóðlegi meistarinn hafði fína pressu lengi en Guðmundur einfaldlega hékk á umframpeðinu og sigldi vinningnum heim.

Alþjóðlegi meistarinn Björn Þorfinnsson er líka með 3,5 eftir sigur á pólskum stórmeistara. Björn var nú lengst af skákar að láta valta yfir sig nokkuð samviskusamlega en vatnaskil urðu þó í 32 leik.
Sá pólski greip um drottninguna og ætlaði sér að leika 32.Dc4 en fattaði þá að sá leikur hafði ákveðna vankanta. Þá var orðið of seint að hætta við þar sem hann hafði þegar snert drottninguna…sá pólski átti einfaldlega ekki betri leik með drottningunni og Bjössi fann taktíkina sem gaf svörtum yfirburðatafl.
Eitthvað voru pólsku meistararnir í óstuði í umferðinni því alþjóðlegi meistarinn Jan Klimkowski (2532) féll á tíma gegn Stefáni Bergssyni í 40. leik. Fyrr í skákinni hafði sá pólski óvart hripað einhver strik í staðinn fyrir að rita niður leik og hélt hann því að hann hefði náð tímamörkunum. Svo var ekki!
Stefán hafði vissulegaa skiptmun yfir en svartur hafði næg peð fyrir skiptamuninn og staðan í dýnamísku jafnvægi.
Margir íslenskir keppendur eru að eiga gott mót. Í þriðju umferðinni misstum við af góðu jafntefli hjá Ingvari Wu Skarphéðinssyni gegn stórmeistaranum Zhu Jiner frá Kína. Hrund Hauksdóttir er taplaus og með góðan sigur á 2000 stiga Svía og svo jafntefli gegn 2100 stiga mann í dag.
Þau skilaboð bárust mótshöldurum frá æstum 1900 stigamanni á 55. borði að kíkja á skák hans, taldi hann meistaraverk þar á ferð!

15.Rh5!! var ansi skemmilegur. Eftir 15…Rxh5 kom 16.Dd1 og hvítur fær manninn aftur útaf hótuninni að leika b4 og ná svörtu drottningunni!
Hvítur fylgdi svo eftir með annarri sleggju! 28.Hxh7!!, fín skák hjá þessum 1900 stiga manni gegn 2300 skákmanni!


Leikar æsast svo um munar í 5. umferð en þar eigum við skákmenn á tveimur efstu borðunum! Mánudagurinn verður mikilvægur með tvöfaldri umferð þar sem línur munu taka að skýrast!

Hægt er að sjá skákir með 15 mínútna töf á eftirfarandi stöðum:
Fjöldi streymara/áhrifavalda eru mætt til leiks eins og í fyrra að sína frá sínum skákum.
- Anna Cramling sýnir á Twitch og Youtube þar sem Pia Cramling skýrir.
- Botez systurnar Alexandra og Andrea eru líka beint á Twitch og á Youtube og Jon Ludvig Hammer er að lýsa.
- WGM Dina Belenkaya er á Twitch og á Youtube og vinkona hennar Julesgambit lýsir
- Zachary Saine „The Chessnerd“ er á Twitch
- Tallulah Roberts „Lularobs“ er á Twitch
- Anna-Maja Kazarian er á Twitch og á Youtube
- Alexandra Prado er á Twitch

















