Alþjóðlega Reykjavíkurskákmótið í boði Kviku eignastýringar og Brim kláraðist í gær eftir stremna viku og á annað þúsund tefldar skákir! Rúmeninn Bogdan-Daniel Deac stóð uppi sem sigurvegari og Íslendingar áttu tvo fulltrúa í topp 10 og litlu munaði að bæði Guðmundur Kjartansson og Héðinn Steingrímsson næðu skiptu efsta sæti. Almennt virtist einróma að mótið hafi tekist vel, spennandi, skemmtilegt og vel heppnað í flesta staði!
Lítum yfir sigurvegarar og byrjum á flokkaverðlaunum.
Rating performance:
Þessi flokkur er besti árangur miðað við eigin stig. Indverjinn Susanth Kamabathula dauðrotaði þennan flokk en þessi 1918 stiga Indverji var ekki aðeins með besta árangurinn miðað við eigin stig heldur náði hann líka í IM norm!

Stigaflokkur 0-2000 stig:
- Susanth Kamabathula (1918) frá Indlandi með 6,5 vinning
- Snorri Vikanes Bjarnason (1875) frá Noregi með 5,5 vinning
- Sachi Jain (1992) frá Indlandi með 5,5, vinning
Stigaflokkur 2001-2200 stig
- Arnar Milutin Heiðarsson (2037) frá Íslandi með 6,5 vinning
- Harry Li (2107) frá Englandi með 6 vinninga
- Keith Mackinnon (2164) frá Kanada með 6 vinninga
Stigaflokkur 2201-2400 stig
- Peter Large (2262) frá Englandi með 6,5 vinning
- Sidhant Mohapatra (2379) frá Indlandi með 6,5 vinning
- Benedikt Dauner (2366) frá Þýskalandi með 6,5 vinning
Flokkur U16
- Jakub Seemann (2451) frá Póllandi með 6,5 vinning
- Susanth Kamabathula (1918) frá Indlandi með 6,5 vinning
- Patryk Cieslak (2325) frá Póllandi með 6,5 vinning
Öldungar 65+
- Peter Large (2262) frá Englandi með 6,5 vinning
- Bragi Halldórsson (2056) frá Íslandi með 5,5 vinning
- Nigel Povah (2202) frá Englandi með 5,5 vinning
Kvennaverðlaun
-
- Leya Garifullina (2413) teflir undir FIDE fána með 6,5 vinning
- Nurgyul Salimova (2426) frá Búlgaríu með 6,5 vinning
- Jiner Zhu (2467) frá Kína með 6,5 vinning
- Miaoyi Lu (2392) frá Kína með 6 vinninga
Topp 10 á mótinu urðu eftirfarandi
10. Jakub Seemann (2451) frá Póllandi með 6,5 vinning
9. Emre Can (2551) frá Tyrklandi með 6,5 vinning
8. Héðinn Steingrímsson (2477) frá Íslandi með 7 vinninga
7. Guðmundur Kjartansson (2468) frá Íslandi með 7 vinninga
6. Matthew Wadsworth (2450) frá Englandi með 7 vinninga
5. Vahap Sanal (2558) frá Tyrklandi með 7 vinninga
4. Praveen Balakrishnan (2490) frá Bandaríkjunum með 7 vinninga

3. Paulius Pultinevicius (2575) frá Litháen með 7 vinninga
2. Sebastien Maze (2551) frá Frakklandi með 7 vinninga

- Bogdan-Daniel Deac (2690) frá Rúmeníu með 7,5 vinning

Árangur Íslendinganna var heilt yfir nokkuð þokkalegur. Hannes stóð nokkurn veginn í stað stigalega en bæði Guðmundur og Héðinn hækka um rúmelga 15 skákstig.
Mesta hækkunin var hjá ungviðinu. Josef Omarsson hækkar um 95,2 stig fyrir sinn árangur. Anton Vignir Guðjónsson bætir við sig 85 skákstigum, Katrín María Jónsdóttir 64,8 ,Sigurbjörn Hermannsson kemur næstur með 57,6 og Matthías Björgvin Kjartansson fær 44 skákstig til viðbótar fyrir sinn árangur.
Jafntefliskóngur mótsins var Kjartan Maack sem endaði mótið á sjö jafnteflum í röð! Ekkert af þessum jafnteflum var stutt!
Myndaalbúm úr lokahófi (Hallfríður Sigurðardóttir)
Hægt var að fylgjast með skákum á eftirfarandi síðum:
Fjöldi streymara/áhrifavalda mættu til leiks eins og í fyrra að sýna frá sínum skákum.
- Anna Cramling sýndi á Twitch og Youtube þar sem Pia Cramling skýrir.
- Botez systurnar Alexandra og Andrea voru líka beint á Twitch og á Youtube og Jon Ludvig Hammer að lýsa.
- WGM Dina Belenkaya var á Twitch og á Youtube og Ben Finegold lýsti
- Zachary Saine „The Chessnerd“ var á Twitch
- Tallulah Roberts „Lularobs“ var á Twitch
- Anna-Maja Kazarian var á Twitch og á Youtube
- Alexandra Prado var á Twitch

















