Alþjóðlega Reykjavíkurskákmótinu í boði Kviku eignastýringar og Brim lauk í dag. Eftir æsispennandi lokaumferð þar sem allt gat gerst enduðu leikar þannig að stigahæsti maður mótsins, Rúmeninn Bogdan-Daniel Deac endaði sem sigurvegari mótsins.

Deac hlut 7,5 vinning en hann var sá eini af forystusauðunum sem náði í sigur í lokaumferðinni. Guðmundur Kjartansson var í fínu færi á að ná í söguleg úrslit en skák hans endaði með jafntefli. Andstæðingur Guðmundar, Sebastien Maze frá Frakklandi átti auðveldan vinning í endatafli þeirra eftir mistök Guðmundar og var því grátlega nálægt sigri á mótinu.

Nánar verður fjallað um lokaumferðina og mótið gert upp á morgun!

Lokaandartök mótsins…

- Auglýsing -