Alls mættu 35 keppendur til leiks á svæðismótið á Akureyri og komu úr sjö skólum á svæðinu. Frábær mæting, en víst hefðum við viljað fá keppedur frá fleiri skólunm. Sérstaklega þótti okkur gaman að nokkrir áhugasamir piltar komu alla leið frá Þórshöfn, sem er í u.þ.b. þriggja tíma akstursfjarlægð. Úrslit í þremur aldursflokkum,(fyrst sá yngsti 1-4. bk, svo milliflokkurinn 5-7. bk. og loks sá elsti 8-10. bk.):
| nafn | skóli | f. ár | vinn |
| Gabríel Máni Jónsson | Oddeyrar | 2016 | 5+2 |
| Skírnir Sigursveinn Hjaltason | Þelamerkur | 2015 | 5+1 |
| Anton Orri Jóhannsson | Brekku | 2014 | 5+0 |
| Nökkvi Már Valsson | Brekku | 2015 | 4 |
| Benedikt Halldórsson | Þórshafnar | 2015 | 4 |
| Ingvar Smári Albertsson | Þórshafnar | 2014 | 4 |
| Sigurbergur Axelsson | Þórshafnar | 2014 | 3 |
| Vilberg Rafael Rúnarsson | Lundar | 2014 | 3 |
| Iraklis Hrafn Theodoropoulos | Oddeyrar | 2016 | 3 |
| Kári Sæberg Magnason | Brekku | 2014 | 3 |
| Friðbjörg Finnsdóttir | Lundar | 2014 | 3 |
| Axel Óli Vilhelmsson | Lundar | 2015 | 2,5 |
| Jakob Ingi Árnason | Þórshafnar | 2014 | 2,5 |
| Haukur Heiðar Birkisson | Lundar | 2015 | 2 |
| Selma Rós Hjálmarsdóttir | Lundar | 2014 | 2 |
| Þórkatla Andradóttir | Lundar | 2015 | 2 |
| Hekla Davíðsdóttir | Lundar | 2015 | 1 |
Hér þurfti úrslitakeppni til að skera úr um sigurvegarann. Gabríel Máni vann örugglega; á samt eftir tvö ár í þessum flokki!
| nafn | stig | skóli | f. ár | vinn |
| Sigþór Árni Sigurgeirsson | 1630 | Oddeyrar | 2011 | 4,5 |
| Egill Ásberg Magnason | Brekku | 2011 | 4 | |
| Viacheslav Kramarenko | 1561 | Lundar | 2013 | 3 |
| Valur Darri Ásgrímsson | 1647 | Brekku | 2012 | 3 |
| Harpa Hrafney Karlsdóttir | Lundar | 2013 | 3 | |
| Jesper Tói Tómasson | Brekku | 2011 | 3 | |
| Unnur Erna Atladóttir | Brekku | 2012 | 2,5 | |
| Kristian Már Bernharðsson | Síðu | 2011 | 2 | |
| Ragnar Starri Atlason | Brekku | 2012 | 2 | |
| Yrsa Sif Hinriksdóttir | Brekku | 2012 | 2 | |
| Eyjólfur Árni Ingimarsson | Brekku | 2013 | 1 | |
| Jón Valur Helgason | Brekku | 2013 | 0 |
Sigþór bar hér sigur úr býtum, en fékk góða keppni, eins og í fyrra. Þetta er lokaárið hans í þessum flokki.
Í unglingaflokki mátti búast við sigri Markúsar, sem og varð raunin. Hann á enn eftir eitt ár í þessum flokki.
| nafn | stig | skóli | vinn |
| Markús Orri Óskarsson | 1798 | Síðu | 5 |
| Baldur Thoroddsen | 0 | Brekku | 4 |
| Kristján Ingi Smárason | 1663 | Borgarhóls | 3 |
| Tobias Þórarinn Matharel | 1656 | Brekku | 1½ |
| Goði Svarfdal Héðinsson | 1635 | Brekku | 1½ |
| Damian Jakub Kondracki | 1507 | Þelamerkur | 0 |
Það eru því þeir Gabríel, Sigþór og Markús sem tefla munu fyrir okkar hönd á Landsmótinu sem haldið verður í Brekkuskóla fyrstu helgina í maí.
Heimasíða SA
















