Íslenski hópurinn við upphaf 1. umferðar

Norðurlandamót stúlkna í skák hófst í dag í húsnæði Taflfélags Reykjavíkur. 40 stúlkur taka þátt í mótinu en þar af eru 13 íslenskir keppendur.

A-flokkur

Fulltrúi Íslands í flokknum er reynsluboltinn Iðunn Helgadóttir. Iðunn tefldi hörkuskák gegn stigahæsta keppanda flokksins en tapaði eftir mikla baráttu.

B-flokkur

Katrín María tefldi vandaða skák gegn Anna Sofie Li, hafði betra tafl eftir byrjunina en voru mislagðar hendur í flækjunum og tapaði.
Margrét Kristín hafði svart gegn Alice Xiong. Hún fékk prýðilega stöðu eftir góðan undirbúning en lenti í vandræðum með biskup sinn í miðtaflinu og hvítur vann lið og skákina stuttu síðar.
Sóley Kría hafði hvítt gegn Guðrúnu Fanneyju. Guðrún hefur mikla reynslu á mótum sem þessum en Sóley Kría tefldi vel í byrjuninni og hélt sínu langt fram í miðtaflið. Þá náði Guðrún Fanney undirtökunum og hafði sigur.
Hrafndís Karen hafði hvítt gegn Ece Gultekin. Hrafndís missti snemma tökin á stöðunni eftir byrjunina og sat uppi með veikleika í stöðu sinni sem hún réð ekki við að valda.

Margrét Kristín, Sóley Kría og Hrafndís Karen voru allar að tefla sínar fyrstu skákir fyrir Íslands hönd.

C-flokkur

Sigrún Tara hafði hvítt gegn Sathish. Sigrún valdi ónákvæma leið eftir byrjunina og fékk heldur verra tafl. Hún átti þó möguleika á að snúa taflinu sér í hag en missti af tækifærinu og tapaði.
Elsa Margrét hafði svart gegn Zhong. Elsa fékk verra tafl eftir byrjunina og náði ekki að snúa sér út úr því.
Tara Líf hafði svart gegn Bhaumik. Tara fékk ágæta möguleika á að fá vel teflanlega stöðu í miðtaflinu en valdi í stað þess rangt framhald, tapaði liði og skákinni.
Halldóra hafði hvítt á Silju Rún. Silja vann lið í byrjuninni og hafði unnið tafl í miðtaflinu. Þá snéri Halldóra taflinu við og vann lið til baka. Hún uppskar svo unnið endatafl og sigldi sigrinum í höfn af öryggi.
Emilía Embla hafði hvítt á skólasystur sína og nöfnu Emilíu S. Sú fyrrnefnda fékk góða stöðu eftir byrjunina, vann lið og vann öruggan sigur.

Meirihluti íslensku keppendanna í C-flokki var að tefla sínar fyrstu skákir fyrir Íslands hönd. Mótið er krefjandi áskorun fyrir þær en um leið dýrmæt reynsla sem þær ná sér í.

2. umferð fer fram kl. 9:00 á morgun, laugardag. Beinar útsendingar eru frá öllum skákum mótsins.

Heimasíða mótsins
Chess-results
Beinar útsendingar

- Auglýsing -