Helgi Áss Grétarsson tryggði sér í kvöld Íslandsmeistaratitlinn í skák í annað skiptið. Áður hafði Helgi unnið titilnn árið 2018 þegar mótið fór fram í Valsheimilinu. Jafntefli Helga við Guðmund Kjartansson með svörtu tryggði titilinn þar sem Vignir Vatnar gerði einnig jafntefli í sinni skák gegn Hannesi Hlífari. Helgi hefur því 1,5 vinning í forskot fyrir lokaumferðina og þó hann tapi þar gegn Vigni hefur hann enn hálfan vinning umfram Vigni.
Segja má að það hafi hlaupið á snærið hjá Helga snemma í umferðinni þegar Hannes þvingaði jafntefli gegn Vigni.
19…Rxe5! vann peð fyrir svartan og tryggði honum aðeins betri möguleika. Vigni náði að vinna peðið til baka en það kostaði það að svartur átti gangandi þráleik á hvítu drottninguna. Vignir gat ekkert gert og jafnteflið innsiglað.
Helga nægði því jafntefli og hann tefldi af miklu öryggi gegn Guðmundi. Guðmundur fékk vissulega aðeins meira rými og þægilegri stöðu en varnarmúr Helga hélt algjörlega og hann virtist meðvitaður um leikskipulag sitt í þessari skák og gekk það fullkomlega upp.
Glæsilega gert hjá Helga og hann vel að titilnum kominn enda augljóst að hann var í besta forminu á þessu móti!
Bárður hefur átt fína spretti á mótinu og hann lagði Hilmi að velli í umferðinni. Hilmir fórnaði peði í miðtaflinu en missti þráðinn eftir að hafa haft fullnægjand bætur. Bárður þjarmaði að Hilmi smátt og smátt og fann svo allt í einu leið til að fanga drottningu svarts á miðborðinu.
Skák Lenku og Olgu var stórskemmtileg. Tefld var Grunfeldsvörn og Lenka tefldi hratt, var greinilega undirbúin. Olga fann skemmtilega leið til að hrifsa frumkvæðið í miðtaflinu.
20…Bc2! var mjög smekklegur leikur og Olga þvingaði Lenku í vörn…Lenka varðist vel og fann líka flotta leið!
28.fxg6! hefði átt að gefa hvítum góð færi. Eftir 28…hxg6 (28…Hxg3 29.gxf7 +-) kom 29.Hb8+ Hc8 og taflið einfaldaðist. 29.Df4! hefði gefið hvítum betra tafl.
Olga náði að snúa á Lenku í endataflinu og nýta sér hættulegt frípeð á a-línunni til hins ítrasta og hafði sigur í skemmtilegri skák.
Dagur tefldi fína skák gegn Hjörvari og hefði hans útfærsla í þessari skák alla jafnan skilað sigri í hús en Hjörvar sýndi hvað það getur verið erfitt að klára dæmið gegn stórmeisturum. Seiglujafntefli hjá Hjörvari!
Útsending umferðarinnar
Úrslit
Aðeins tvær sigurskákir í þessari umferð
Staðan
Helgi á sigurinn vísan enis og áður sagði með 8,5 vinning og 1,5 vinning í forskot. Baráttan um 3-5. sætið er hörð en Aleksandr stendur þar best að vígi.
Pörun 11. umferðar
Í lokaumferðinni mætast Helgi Áss og Vignir.
11. umferð hefst klukkan 13:00 á morgun, laugardag.
- Chess-Results
- Skákskýringar á YouTube (hefjast á milli 16:30-17:00)
- Beint á Chess.com
- Beint á Lichess
- Beint á Chessbase