Hannes að tafli á Kviku Reykjavíkurskákmótinu í Natura.

Stórmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson stóð í ströngu á „Skákvikunni í Przeworsk“, lokuðum GM-flokki sem fram fer í Póllandi í dag. Tefld var tvöföld umferð í dag og tefldi Hannes tvær langar og erfiðar skákir og hafði upp úr krafsinu 1,5 vinning!

Í fyrri skákinni mætti Hannes úkraínsku goðsögninni Oleg Romanishin og stýrði hvítu mönnunum. Sá gamli fórnaði peði en hafði mjög sterkan riddara á d5 í miðtaflinu sem hélt skákinni í jafnvægi. Það fór að halla undan fæti hjá svörtum þegar hann skipti þessum riddara upp. Hannes var kominn með betri færi og sneri svo á Oleg í endataflinu.

Fínn sigur hjá Hannesi sem er þá með 2 af 2 í morgunumferðum á þessu móti! Í seinni skákinni hafði Hannes svart gegn enska ungstrininu Shreyas Royal sem er einn efnilegasti skákmaður Englendinga. Hannes var undir mikilli pressu í þessari skák og lenti í hálfgerðri nauðvörn. Sá enski missti af nokkrum þrumuleikjum og Hannes náði að lokum að sleppa með skrekkinn þegar þráleikið var í lokin. Fínt baráttujafntefli!

Hannes hefur nú 4 vinninga úr 7 umferðum og hefur fundið sig betur nú þegar liðið hefur á mótið. Hann fær aftur svart á morgun, nú gegn Antoni Kozak (2434).

- Auglýsing -