Aleksandr Domalchuk-Jonasson er enn taplaus að loknum fimm umferðum á Heimsmeistaramóti U20 sem fram fer í Gujrathi á Indlandi. Í fimmtu umferðinni í dag gerðir Aleksandr jafntefli með hvítu mönnunum.
Andstæðingur dagsins var ungverski stórmeistaranum Gleb Dudin (2532) og að sögn Aleksandrs kom hann honum á óvart í Katalan-byrjuninni með 8…Rb6 sem var leikur sem hann þekkti ekki. Aleksandr lenti tveimur peðum undir og var að berjast við að halda dýnamískum möguleikum hvíts gangand. Það tókst, hvítur vann peð og var raunar kominn með yfirhöndina á tímabili og hefði mögulega getað teflt áfram þegar stórmeistarinn bauð jafntefli en það hefði líklegast verið of mikið eftir það sem á undan gekk, Aleksandr þáði því boðið.
Í 6. umferðinni fær Aleksandr aftur stórmeistara, nú Armena að nafni Emin Ohanyan (2501). Aleksandr mun stýra svörtu mönnunum.

- Heimasíða mótsins
- Mótið á chess-results
- Skákir á lichess
















