Fjórir íslenskir skákmenn hófu í dag leik á fjögurra daga, átta umferða kappskákmóti í Riga. Í gær og fyrradag fór fram at- og svo hraðskákmót þar sem hitað var upp. Stigahæstur íslensku keppendanna er landsliðsmaðurinn Hilmir Freyr Heimisson en ekki langt á eftir honum kemur svo Aleksandr Domalchuk-Jonasson, ferskur frá HM á Indlandi. Bræðurnir Adam og Josef Omarssynir taka einnig þátt á mótinu.
Í fyrri umferð dagsins pöruðst Josef og Hilmir saman. Hilmir hafði greinilega meiri reynslu í miðtafls-stöðutýpunni sem kom upp. Svarta staðan varð mun betri og Josef gaf peð sem Hilmir nýtti sér í endataflinu og vann sigur.
Fimm skákir eru beint og var þetta eina skákin í beinni í þessari umferð hjá Íslendingunum.
Aleksandr Domalchuk-Jonasson er kannski farinn frá Indlandi en hann er ekki laus við „underrated“ Indverja og tapaði fyrir einum slíkum í fyrstu umferðinni, Abhijiit Patil Yash (1871) en skartar þó Arena-IM titli sem flestir telja þó ekki merkilegan pappír.
Adam Omarsson lagði sinn andstæðing að velli í fyrstu umferð heimamanninn Ralfs Mancursevs (1570).
Hilmir var aftur í beinni í 2. umferð þar sem mætti Ítalanum Riccardo Treccozzi (2048). Hilmir hafði hvítt og fór í kóngssókn gegn kóngsindverjanum og kláraði sóknina skemmtilega.
Aleksandr fékk ótrlegt en satt aftur Indverja í 2. umferð Guruprasad Amulya (1749) en hafði sigur gegn þessum! Adam tapaði gegn franska stórmeistaranum Nikolay Legky (2339) og Josef lagði Ítalann Giula Caria (1693). Þeir þrír hafa því allir einn vinning eftir fyrri daginn.
Hilmir hefur 2 af 2 og mætir lettneska skákmanninum Emils Janis Mierins (2224) í beinni á morgun. Tefldar eru tvær skákir alla fjóra dagana!


















