Íslenska liðið á HM öldungasveita í Krakow í Póllandi tefldi gríðarlega mikilvæga viðureign við sterkt lið Englendinga. Fyrirfram voru þessi lið líkleg á mótinu, Englendingar Evrópumeistarar og númer tvö í stigaröðinni á mótinu en íslenska liðið í þriðja sæti.

Helgi Ólafsson hvíldi hjá íslenska liðinu en hann mætti einmitt Adams á síðasta HM og tapaði þá. Jóhann reyndi sig gegn ofurstórmeistaranum Adams en hjá Englendingum hvíldi Nigel Davies.

Jóhann glímdi við Adams með svörtu og var við það að vinna sig úr pressunni sem hvítur fékk úr byrjuninni. Einn ónákvæmur leikur og Jóhann var skyndilega í smá klemmu. 15…g6?? reyndist afleikur.
Hér lenti Jóhann í sannkölluðu „djöflatrikki“ eins og menn kalla það. Hvítur á nefnilega 16.Rxg6! fxg6 17.De5! og svartur getur ótrúlegt en satt ekki valdað hrókinn á h8 þar sem 17…Hg8 er svarað með 18.Dxe6+
Þarna lendum við strax 0-1 undir þannig að mikið undir á hinum borðunum!

Þröstur steig þá upp á fjórða borði gegn Keith Arkell. Þröstur með hvítt fékk fínt tafl eftir Caro-kann og taktísk aðgerð Arkell í miðtaflinu gerði lítið annað en skilja Þröst eftir með biskupaparið og aðeins betra tafl. Það góða við biskupaparið er að hægt er að velja litina sem ráðist er á í stöðu andstæðingins og í þetta skiptið var hvítreitabiskup Þrastar örlagavaldur þar sem kóngsstaða Arkell var mjög veikt á hvítu reitunum. Fínn sigur hjá Þresti og staðan orðin 1-1

Margeir hafði hvítt gegn John Emms. Upp kom drottningarbragð og hvítur fékk ekki nægilega mikið. Í hróksendatafli náði Margeir að vinna peð en staðan var alltaf fræðilegt jafntefli og Emms hefur skrifað bækur um hróksendatöfl og gerði engin mistök!
Staðan nú 1,5-1,5

Viðureignin réðist því á skák Jóns L. gegn Glenn Flear. Jón L. hafði svart og þegar staðan var orðin 1,5-1,5 var hann kominn með vænlegt endtafl, peði yfir. Skákin var löng og ströng og spennan mikil. Jón L. var kominn í nokkuð tímahrak og aftraði það honum líklegast frá því að finna bestu leiðirnar. Svartur hafði líklegast á tíma hartnær unnið tafl en Flear náði að verjast af hörku og loks vinna peðið til baka með steindauðu jafntefli.

2-2 að mörgu leiti ágætis úrslit en að sama skapi hefði verið ljónsterkt ef sigurinn hefði dottið. Ítalir unnu Bandaríkjamenn eilítið óvænt 2,5-1,5 og mætir íslenska liðið því ítalska í fimmtu umferðinni. Enn og aftur mikilvæg viðureign við Ítali á þessum mótum og ljóst að möguleikar liðsins munu ráðast í þeirri viðureign og viðureign við bandarísku sveitina.
Tvær umferðir eru um helgina og svo kemur frídagur!
Íslenska sveitin á mótinu er sterk sem endranær. Liðið skipa í borðaröð:
- Helgi Ólafsson
- Jóhann Hjartarson
- Margeir Pétursson
- Jón L. Árnason
- Þröstur Þórhallsson
Íslenka liðið teflir í flokki 50+ þar sem tefldar verða 9 umferðir. Alls taka 31 sveit þátt í 50+ flokknum og er Ísland (2439) númer þrjú í styrkleikaröð á eftir feykisterkri sveit Bandaríkjamanna (2480) og Evrópumeistara Englendinga (2469). Skammt á hæla Íslendinga kemur sveit Ítala (2431) sem er svipuð að stigum og sú íslenska og hefur oft reynst okkur erfið. Þessar fjórar sveitir eiga að vera í nokkrum sérflokki á þessu móti!

















