Adam Omarsson gerði jafntefli í þriðju umferð á Benasque Open, risastóru opnu móti á Spáni þar sem hvorki fleiri né færri en 502 skákmenn eru skráðir til leiks og yfir 20 stórmeistarar.
Adam mætti heimamanninum Ibon Martin Echeandia (2027) og hafði hvítt. Byrjunin hjá þeim var eitthvað óræð og greinilegt að andstæðingur Adams hafði meiri áhyggjur af gangi mála því hann bauð jafntefli og Adam ákvað að samþykkja boðið.

Úrslitin voru ekki Josef í hag í umferðinni. Josef beitti Sveshnikov með svörtu og fékk fína stöðu en fór mögulega of snemma í mannsfórn þar sem hvítur hékk á lífi á einu tempói. Josef náði að berjast í endatafli en á endanum taldi liðsaflinn og Josef varð að lúta í dúk.
1,5 af 3 hjá Adam en 0,5 af 3 hjá Josef.
- Auglýsing -


















