Opna mótið í Benasque kláraðist í dag þegar 10. umferðin fór fram. Skemmst er frá því að segja að Adam og Josef fengu báðir vinning í umferð dagsins en því miður mætti hvorugur andstæðinga þeirra til leiks í dag, smá súrsætt!

Adam átti að mæta átti að mæta heimamanninum Ricardo Del Cerro (2094) með svörtu og Josef var paraður gegn Sergio Rodriguez (2002).

Kannski máttu Spánverjarnir ekki vera að því að tefla enda mikið í gangi í spænsku sporti. Carlos Alcaraz vann Wimbledon og Spánverjar tóku Evrópumeistaratitilinn í fótbolta. Örugglega skemmtileg stemmning á Spáni og gaman fyrir þá feðga að upplifa það!

Lokauniðurstaðan hjá Adam varð því 6,5 vinningur af 10. 68. sæti á 500+ manna móti er sérdeilis prýðilegur árangur og hækkar Adam um 68 elóstig fyrir árangurinn, sama og sætið!

Josef getur einnig gengið sáttur frá borði, hann hafnaði í 122. sæti með 6 vinninga af 10 og hækkar um 14 elóstig fyrir árangurinn.

Fínt mót hjá þeim bræðrum en Evróputúrinn heldur áfram…skákin sefur aldrei!

- Auglýsing -