Hilmir Freyr að tafli á Haustmóti TR. Mynd: Heimasíða TR

Íslenski landsliðsmaðurinn Hilmir Freyr Heimisson (2392) lauk í dag þátttöku í sterkri lokaði GM-grúppu í Köge í Danmörku. Mótið kláraðist á aðeins sex dögum, ört teflt!

Í lokaumferðinni hafði Hilmir hvítt gegn þýska alþjóðlega meistaranum Magnus Ermitsch (2392). Skák þeirra varð strategískt flókin staða úr Katalan-byrjun þar sem Hilmir virðist aðeins missa tökin í miðtaflinu og svartur fékk hættulegt frumkvæði á drottningarvængnum. Svartur fórnaði í kjölfarið drottningunni og uppskar að lokum stórhættuleg frípeð sem ekki var hægt að stöðva.

Lokaniðurstaðan hjá Hilmi því 4 vinningar af 9 mögulegum. Skak.is reiknast til að Hilmir tapi um 6 elóstigum á þessu móti. Margt gott sem Hilmir getur tekið með sér og öll reynsla og taflmennska mikilvæg fyrir komandi Ólympíumót í Búdapest í september.

- Auglýsing -