Dómstóll SÍ felldi þrjá nýja úrskurði í gær, 18. júlí.
Annars vegar vegna kæru SÍ á hendur Héðni Steingrímssyni fyrir að hafa hætt á Skákþingi Íslands 2024 án gildrar ástæðu og tveggja annarra atriða. Niðurstaða Dómstóls SÍ var að Héðinn hafi hætt þátttöku í mótinu án gildrar ástæðu og er Héðni bönnuð þátttaka í Skákþingi Íslands í eitt ár.
Hins vegar tvær kærur Héðins. Annars vegar gegn SÍ og hins vegar gegn Agnari Tómasi Möller fyrir ósæmilegrar framkomu og efnislegra rangra skrifa. Báðum kærunum var vísað frá.
Þessa þrjá nýju úrskurði sem og úrskurði dómstóls SÍ frá 2011 má finna á heimasíðu SÍ.
- Auglýsing -

















