Þrír Íslendingar taka nú þátt á Czech Open í Pardubice í Tékklandi. Í ár teflir Lenka Ptacnikova í A-flokki en synir hennar Josef og Adam Omarssynir tefla í B-flokki.

Lenka tapaði á sýningarborði í fyrstu umferð gegn sænska alþjóðlega meistaranum Hampus Sörensen eins og áður hefur verið greint frá. Í annarri umferð á laugardeginum varð Lenka svo að lúta í dúk gegn S-Kóreumanninum Isaak Huh (1974). Oft er erfitt að lesa í stig og styrkleika skákmanna frá S-Kóreu og ekki ólíklegt að hér sé mjög „underrated“ skákmaður á ferð.

Lenka rétti úr kútnum í þriðju umferðinni á sunnudeginum þar sem hún lagði þýska skákmanninn Clemens Beyer (1972) að velli.

Í B-flokknum hefur gengið skínandi vel hjá þeim Adam og Josef Omarssonum. Báðir hafa 2,5 vinning. Á laugardeginum var tvöföld umferð og svo þriðja umferð á sunnudeginum.

Adam byrjaði af krafti og vann fyrstu tvær skákir sínar. Fyrst lagði hann heimamanninn Lukas Ocelak (1685) og fylgdi því eftir með sigri gegn Ondrej Sigut (2026). Í þriðju umferðinni sættist Adam svo á skiptan hlut gegn Lukas Zelba (1959).

Josef byrjaði á jafntefli gegn Oleksandr Zinchenkov (1686) frá Úkraínu en hrökk svo í gang. Fyrst lagði hann skákmann frá Sameinuðu Furstadæmunum, Hanan Khalil (1734) og svo Pólverjann Maksymilian Krogulski (1678) frá Póllandi.

Framundan er fjórða umferð í báðum flokkum þar sem baráttan heldur áfram.

- Auglýsing -