Íslensku landsliðsmaðurinn Hilmir Freyr Heimisson hélt í dag áfram keppni á opnu móti í Danmörku þar sem tvær umferðir fóru fram í dag. OBRO international mótið fer fram í Kaupmannahöfn frá 22-28. júli og verða tveir tvöfaldir keppnisdagar, svipað og á Reykjavíkurskákmótinu. Alls eru 54 keppendur sem tefla 9 umferðir og er Hilmir númer 8 í stigaröðinni. Fimm stórmeistarar eru skráðir til leiks.

Í báðum skákum dagsins, og í raun í fyrstu umferðinni í gær var tefld sikileyjarvörn og hefur hún verið að gefa ansi vel hjá Hilmi!

Í fyrri skákinni, 2. umferð mótsins, mætti hann Svíanum Alexander Nord (2212) og hafði að þessu sinni hvítt. Segja má að snemma var ljóst að það eina sem stefndi norður voru peð Hilmis á kóngsvæng. Mótspils Nord var ekki komið af stað og Hilmir með yfirburðastöðu snemma. Smá taktísk aðgerð vann mann og eftirleikurinn auðveldur.

Seinni skák dagsins var öllu erfiðari. Hilmir hafði þá svart gegn úkraínska stórmeistaranum Yuri Solodovnichenko (2481) og að sjálfsögðu í sikileyjarvörn. Hilmir komst ágætlega út úr byrjuninni en virtist missa þráðinn aðeins og ákvað að gefa mikilvægt peð. Fyrir peðið fékk þó Hilmir hættuleg færi og þrátt fyrir að standa verr í tölvunum var staðan mjög óræð og erfitt að meta hana.

Fór að lokum svo að Hilmir hélt jöfnu í endatafli eftir mikinn og athygisverðan barning.

Hilmir hefur því 2,5 vinning af 3 mögulegum og er í skiptu öðru sæti en aðeins danski alþjóðlegi meistarinn Martin Haubro hefur fullt hús vinninga. Á morgun í 4. umferð mætir Hilmir danska FIDE meistaranum Casper Yukun Liu (2316).

- Auglýsing -