Vignir Vatnar að tafli.

Vignir Vatnar Stefánsson (2500) heldur skiptu toppsæti á Leca Chess Open sem er opið mót í Portúgal.  Vignir er númer 3 í stigaröð á þessu 209 manna skákmóti. Auk Vignis eru með í för þeir Benedikt Briem (2148), Theodór Eiríksson (1638) og Eiríkur Orri Guðmundsson (1517). Vignir hafði 3,5 vinning í upphafi dags en tefldar voru tvær umferðir í dag. Hinir Íslendingarnir höfðu allir tvo vinninga.

Vignir hafði svart gegn Piotr Brodowski (2428) alþjóðlegum meistara frá Póllandi í fyrri umferðinni, þeirri fimmtu. Vignir lenti í mikilli klemmu í miðtaflinu og var kominn með mjög erfiða stöðu, hartnær tapað á tímabili. Með mikilli seiglu náði Vignir að verjast og loks stýra skákinni í steindautt endatafl. Svona jafntefli eru mikilvæg með hinum punktunum!

Benedikt vann sína skák í fimmtu umferðinni gegn WFM Önu Silva (1959). Theodór náði fínu jafntefli með svörtu gegn Raquel Duque (1869) en Eríkur tapaði sinni skák.

Í sjöttu umferð hafði Vignir hvítt og fór í svíðingsgallann gegn FIDE meistaranum Daniel Kopylov frá Þýskalandi. Kopylov var nafni sínu trúr og reyndi að fá symmetríska stöðu en Vignir var ákveðinn í endataflinu, vann peð og sigldi vinningnum heim í riddaraendtafli peði yfir.

Benedikt var líka í beinni í þessari umferðog tefldi prýðilega skák. Andstæðingurinn var Reinaldo Silva (1820) og beitti Benedikt einhverskonar nýmóðins uppstillingu gegn Catalan sem Vignir hefur einnig beitt. Fór svo að Benedikt yfirspilaði andstæðing sinn nokkuð auðveldlega og vann skákina.

Theodór náði í önnur góð úrslit þegar hann lagði Diogo Goncalves (1939) að velli. Eiríkur tapaði sinni skák og hefur aðeins misst flugið eftir sterka byrjun.

Vignir hefur nú 5 vinninga og er jafn fimm öðrum skákmönnum í efsta sæti.  Benedikt hefur 4 vinninga og Theodór 3,5 vinning. Eiríkur hefur 2 vinninga.

Á morgun er einföld umferð, sú sjöunda. Vignir mætir G B Harshavardhan (2425) indverskum alþjóðlegum meistara og hefur svart. Benedikt fær erfiðan andstæðing pólskan alþjóðlegan meistara Stanislav Zylka  (2394). Þeir verða báðir í beinni útsendingu.

- Auglýsing -