Adam Omarsson virðist í góðu formi þessa dagana og hækkaði vel á stigum á Czech Open sem lauk á dögunum. Hann byrjar vel á Summer Prague Open þar sem hann teflir nú ásamt Josef bróður sínum og Lenku Ptacnikovu, móður sinni. Í 2. umferð í dag lagði Adam FIDE meistara að velli.

Mótið er opið mót sem fer fram eins og nafnið gefur til kynna í Prag í Tékklandi. Alls taka 208 skákmenn þátt en þó aðeins einn stórmeistari en þó fjöldi titilhafa. Lenka er númer 40 í stigaröðinni, Adam er númer 81 og Josef númer 122.

Viðureign Adams gegn FIDE meistaranum Rudolf Jun (2198) var í beinni útsendingu og hafði Adam hvítt. Upp kom kóngsindversk vörn en Adam átti einmitt fína skák í þessu afbrigði með hvítu fyrr í sumar. Adam valdi semsagt hið svokallaða Bayonet-afbrigði sem Kramnik og fleiri gerðu vinsælt á sínum tíma og varð á sínum tíma þess valdandi að vinsældir kóngsindverjans dvínuðu verulega.

Miðtaflið var orðið mjög gott hjá Adam sem var búinn að opna drottningarvænginn og svartur ekki langt kominn á kóngsvængnum. Adam missti þá eitthvað þráðinn og taflið jafnaðist og úr varð mikil baráttuskák.

Adam náði að skorða peð svarts sem líta hættulega út. 41.Db8+ og svo fór drottningin á b4 og á daginn kom að hvítu peðin eru hættulegri. Adam skildi endataflið greinilega betur!

Lenka hafði hvítt gegn WCM Diana Tynyshtyk (1935) frá Kazaksthan og skildu þær jafnar.  Josef varð hinsvegar að lúta í dúk með svörtu gegn indverskum skákmanni, Atharva Bakhare (1775).

Á morgun er tvöföld umferð. Adam verður í beinni á 12. borði þar sem hann hefur svart gegn þýska FIDE meistaranum Pascal Neukirchner (2261). Lenka verður líka í beinni gegn úkraínska skákmanninum Mikhola Bohatyrov (1847). Josef hefur hvítt gegn Vladislav Konvalinka (1758) og reynir að rétta úr kútnum.

- Auglýsing -