Hinn ungi og efnilegi Aleksandr Domalchuk-Jonasson tefldi tvöfalda umferð í dag á opnu móti á Ítalíu, Lignano Sabbiadoro Open 2024. Vinningur og jafntefli kom í hús og Aleksandr í öðru sæti, hálfum vinningi á eftir efsta manni að loknum þremur umferðum.
Í fyrri umferð dagsins hafði Aleksandr hvítt gegn Adrian Leopold (2181) frá Frakklandi. Í miðtaflinu misreiknaði Leopold sig í baráttustöðu.
33…Bxe2?? tapar liði og Aleksandr sá lengra í flækjunum! Líklegast hefur svörtu yfirsést að eftir 36…Bxd4 getur hvítur bara leikið rólegum biskupsleik og leppunin á hrókinn er ekki að fara neitt.
Í seinni skákinni hafði Aleksandr svart og beitti hinni sjaldgæfu Nimzovitsch vörn sem leiðir oft til svipaðrar peðastöðu og franska vörnin. Aleksandr fékk þokkalega færi á að yfirspila andstæðing sinn, WFM Vishwa Shah (2179) frá Indlandi en varnir þeirrar indversku héldu.
Aleksandr hefur því 2,5 vinning að loknum þremur umferðum og er jafn átta öðrum skákmönnum, hálfum vinningi á eftir Ilan Schneider (2377) frá Argentínu.
Í fjórðu umferð er það aftur indverskur andstæðingur, nú Kumar Prudhvi (2129).
Lignano Sabbiadoro Open 2024 er opið mót sem fram fer í bænum Lignano á Ítalíu. Mótið er flokkaskipt, fjórir flokka fara fram á sama tíma og teflir Aleksandr Domalchuk-Jonasson í Masters flokki þar sem hann er 8. í stigaröð af 52 keppendum. Stigahæstur keppenda er IM Ilya Martinovici (2439) frá Moldavíu. Fjórir stórmeistarar taka þátt og fjöldi titilhafa. Tefldar eru 9 umferðir eftir svissneska kerfinu.















