Stórmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson (2464) hefur tekið sæti í landsliði Íslands sem teflir á Ólympíumótinu í Búdapest 10.-23. september nk. Hannes tekur sæti Hjörvars Steins Grétarsson sem dró sig út úr landsliðinu af persónulegum ástæðum.

Landslið Íslands í opnum flokki skipta eftir breytingu (borðaröð ekki ákveðin)

  1. GM Vignir Vatnar Stefánsson (2526)
  2. GM Guðmundur Kjartansson (2474)
  3. GM Hannes Hlífar Stefánsson (2464)
  4. GM Helgi Áss Grétarsson (2454)
  5. IM Hilmir Freyr Heimisson (2391)
- Auglýsing -