Hinn ungi og efnilegi Aleksandr Domalchuk-Jonasson lauk fyrir fáeinum dögum mótinu á Spilimbergo á Ítalíu þar sem hann tók þátt ásamt Helga Áss Grétarssyni. Aleksandr hóf í dag leik á öðru móti, Lignano Sabbiadoro Open 2024.

Lignano Sabbiadoro Open 2024 er opið mót sem fram fer í bænum Lignano á Ítalíu. Mótið er flokkaskipt, fjórir flokka fara fram á sama tíma og teflir Aleksandr Domalchuk-Jonasson í Masters flokki þar sem hann er 8. í stigaröð af 52 keppendum. Stigahæstur keppenda er IM Ilya Martinovici (2439) frá Moldavíu. Fjórir stórmeistarar taka þátt og fjöldi titilhafa. Tefldar eru 9 umferðir eftir svissneska kerfinu.

Í fyrst umferð mætti Aleksandr heimamanninum Matteo Viti (2049) og hafði svart. Upp kom frönsk vörn og tefldi Sasha 3…h6 afbrigðið sem er frekar „nýmóðins“ og vinsælla hjá yngri skákmönnum af Chessable-kynslóðinni.

Í miðtaflinu hafði svartur betur, náði peði af hvítum og náði að halda umframpeðinu, ná öðru og passa upp á kóngsstöðuna nægjanlega vel til að komast í kolunnið drottningarendatafl. Fín byrjun hjá Aleksandr.

Á morgun er tvöföld umferð en tvær slíkir dagar eru á mótinu, hinn á mánudaginn.

- Auglýsing -