Í baráttunni á NM Hjörvar Steinn Grétarsson. — Ljósmynd/Ómar Óskarsson.

Þessa dagana gefst gott tækifæri til að fylgjast með nokkrum liðsmönnum Íslands við taflið í undirbúningsferli fyrir ólympíuskákmótið sem hefst í Búdapest þann 10. september nk. Í vikunni hóf Hjörvar Steinn Grétarsson þátttöku sína á Norðurlandamótinu í skák sem fram fer í Þrándheimi í Noregi en hinn fulltrúi Íslands þar er Íslandsmeistari kvenna, Olga Prudnynkova. Þetta er níu umferða opið mót með 68 þátttakendum og er Hjörvar nr. 7 í styrkleikaröðinni en stigahæsti keppandinn er Norðmaðurinn Jon Ludvig Hammer. Hjörvar hafði hlotið 2½ vinning af 3 mögulegum en Olga var með 1½ vinning. Hjörvar átti í gær að tefla við gamlan kunningja, norska stórmeistarann Frode Urkedal, en Olga mætti Eric Rosen frá Bandaríkjunum.

Á sama tíma tekur Guðmundur Kjartansson þátt í sterku 10 manna lokuðu móti í Kaupmannahöfn og hafði eftir þrjár umferðir hlotið 2 vinninga. Í gær hóf svo Helgi Áss Grétarsson þátttöku á vel skipuðu opnu móti í smábænum Spilimbergo á Norður-Italíu.

Vignir Vatnar Stefánsson hefur verið manna duglegastur við að tefla undanfarið og í vikunni lauk enn einu móti hans. Nú var hann kominn á opið mót í Portúgal og eins og það hafði þróast hefði jafntefli dugað Vigni í síðuatu umferð til þess að ná efsta sæti með öðrum – en vinna mótið á stigum. En því miður tapaði hann, hlaut 6½ vinning af 9 og hafnaði í 5. sæti. Þó hann hafi einnig tapað í síðustu umferð alþjóðlega mótsins í Kanada á dögunum hef ég enga trú á því að hér sé komið fram einhvers konar vanaatferli. Lokaumferðir eru oft tímasettar þvert á aðra dagskrá og það fer misjafnlega í keppendur. Í þessu tilviki var okkar maður óþekkjanlegur, fékk óteflandi stöðu snemma og síðar tapað tafl. Vignir hefur verið duglegur að grafa upp gömul og vel gleymd afbrigði og eitt slíkt kom fram í skák hans gegn indverskum alþjóðlegum meistara. Schliemann-afbrigðið kemur upp úr spænska leiknum, en hefur aldrei notið mikilla vinsælda. Þekktasta dæmið er úr einvígi Karpovs og Kortsnojs í áskorendakeppninni árið 1974:

Leca Chess Open, 7. umferð:

G.B. Harshavardan – Vignir Vatnar Stefánsson

Spænskur leikur

1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6

Önnur leið, sem í dag sem einnig er nefnd eftir Schliemann þessum, hefst með 3. …f5 og var áður oftast nefnd eftir finnsk/rússneskum 19. aldar meistara, Karl Janisch að nafni.

4. Ba4 f5

Schliemann – afbrigðið hefst með þessum leik.

5. d4 exd4 6. e5 b5 7. Bb3 Bb7 8. 0-0 Ra5

 

 

 

 

 

9. Bxg8?

Það er hægt að finna rök fyrir þessum slaka leik en hann ber engu að síður vott um lélega dómgreind. Hvítur ætti hiklaust að ráðast gegn helsta veikleika í uppbyggingu svarts, f5-peðinu, og leika 9. Rxd4!

9. … Hxg8 10. Rxd4 De7! 11. Rxf5 De6 12. Rd4 Dg6 13. f3 0-0-0

Svartur hefur komið mönnum sínum vel fyrir og biskupinn á b7 er geysilega sterkur . Tilraunir hvíts til að opna stöðuna á drottningarvæng eru jafnframt dæmdar til að mistakast.

14. a4 b4 15. c3 Bc5 16. Kh1 Hge8 17. Rd2 Hxe5 18. R2b3 Rxb3 19. Rxb3 Hd5 20. Bd2 Bd6 21. Dc1 Hf8!

Hárfínn leikur sem hindrar uppskipti á biskupum með – Bf4.

22. De1 Hh5 23. h3

Það var enga vörn að finna.

23. … Hxh3+! 24. gxh3 Hxf3

– og hvítur gafst upp.

Skákþættir Morgunblaðsins eru birtir á Skák.is u.þ.b. viku eftir að þeir birtast í Morgunblaðinu. Skákþáttur þessi birtist 10. ágúst 2024

- Auglýsing -