Landsliðskonan Lenka Ptacnikova (2086) kláraði í dag taflmennsku á lokuðu alþjóðlegu móti í Olomouc, svokölluðum IM-flokki. Mótið varð hálf þrískipt hjá Lenku, erfið byrjun, fínn miðkafli og svo slæmi kaflinn í lokin.
Eftir nokkur góð jafntefli, kom tap í sjöundu umferð og í gær kom aftur tap í áttundu umferðinni. Lenka mætti þar heimamanni, Roman Zvaurka (2191). Lenka fór í vafasamar aðgerðir snemma í miðtaflinu en slapp með skrekkinn í 17. leik
Hvítur átti hér skemmtilegt skot, 17.Re6! og hvítur stendur nánast til vinnings. Þess í stað slapp Lenka í endatafl, peði undir. Endataflið hefði átt að vera „holdebar“ eins og sumir sletta stundum.
54…Hh8?? var röng nálgun, svartur varð að koma peðum sínum í gagnið. 54…f6+ hefði verið rétt. 55.a6? nýtti ekki mistökin (55.Ha4!) og aftur var séns 55…f6+ og jafnteflið er t.d. að finna eftir 56.Kf4 f5 57.gxf5 gxf5 58.Kxf5 Hh5+ og við höfum tablebase-jafntefli. Eftir 55…Ha8?? var of mikill tími farinn í súginn og hvítur náði að vinna endataflið.
Í lokaumferðinni í dag hafði Lenka hvítt gegn FM David Schernthaner (2331). Miðtaflið varð að baráttu um d4 reitinn sem var veikur hjá hvítum og má eiginlega rekja aftur til d3 leiksins í byrjuninni sem var full passífur. Austurríkismaðurinn nýtti veikleikann til fulls í miðtaflinu og vann peð og náði að nýta það til sigurs.
Lenka endaði með 1,5 vinning af 9 í flokknum og tapar um 25 elóstigum á mótinu. Austurríkismaðurinn tryggði sér sigur í flokknum með sigrinum á Lenku í lokaumferðinni.















