Aleksandr Domalchuk-Jonasson gerði jafntefli í sjöundu umferðð í dag á opnu móti á Ítalíu, Lignano Sabbiadoro Open 2024. Aleksandr mætti þar efsta manni mótsins og endaði skákin með mjög snarpri þráskák snemma tafls.

Aleksandr hafði svart gegn GM Artem Omelja (2434) og upp kom Berlínarvörnin í spænska leiknum. Hvítur fórnaði manni til að opna svörtu kóngsstöðuna en fylgdi því svo eftir með hróksfórn og mannsfórn sem endaði í þráskák.

Svartur hefði mögulega getað teflt áfram í lokastöðunni 17…Kd6 en tekur þá við gjörsamlega galin leikjaruna af „only-moves“ á báða. 18.Ra3 Bxa3 19.Hd1+ Rd4 20.Rxd4 De4 21.f3 …mikið af leikjum sem enginn er að finna óundurbúinn. Sasha ákvað því að leyfa þráskákina með 17…Kf7.

Þrátt fyrir að hafa gert þrjú jafntefli í röð þá er Aleksandr en í öðru sæti á mótinu ásamt öðrum og hálfum vinningi á eftir Artem.

Lignano Sabbiadoro Open 2024 er opið mót sem fram fer í bænum Lignano á Ítalíu. Mótið er flokkaskipt, fjórir flokka fara fram á sama tíma og teflir Aleksandr Domalchuk-Jonasson í Masters flokki þar sem hann er 8. í stigaröð af 52 keppendum. Stigahæstur keppenda er IM Ilya Martinovici (2439) frá Moldavíu. Fjórir stórmeistarar taka þátt og fjöldi titilhafa. Tefldar eru 9 umferðir eftir svissneska kerfinu.

- Auglýsing -