Aleksandr Domalchuk-Jonasson sitt fjórða jafntefli í röð í áttundu umferð í dag á opnu móti á Ítalíu, Lignano Sabbiadoro Open 2024. Aleksandr mætti reyndum stórmeistara, Azer Mirzoev (2429) frá Azerbaijan.

Aleksandr hafði hvítt í skákinni og fékk eitthvað þægilegra tafl framan af. Azer virtist ná að standa af sér pressuna en Aleksandr komst þó í endatafl sem var alltaf þægilegra á hvítt. Ekki tókst okkur manni að gera sér mat úr því að þessu sinni en jafnteflið alltaf í öruggum höndum og það urðu lokaúrslitin.

Aleksandr er enn hálfum vinningi á eftir efstu mönnum en nú með fimm öðrum skákmönnum. Í lokaumferðinni hefur Aleksandr aftur hvítt og mætir nú Kundu Kaustuv (2419) frá Indlandi.

Lignano Sabbiadoro Open 2024 er opið mót sem fram fer í bænum Lignano á Ítalíu. Mótið er flokkaskipt, fjórir flokka fara fram á sama tíma og teflir Aleksandr Domalchuk-Jonasson í Masters flokki þar sem hann er 8. í stigaröð af 52 keppendum. Stigahæstur keppenda er IM Ilya Martinovici (2439) frá Moldavíu. Fjórir stórmeistarar taka þátt og fjöldi titilhafa. Tefldar eru 9 umferðir eftir svissneska kerfinu.

- Auglýsing -