Annar keppnisdagurinn á EM ungmenna gekk mun betur en sá fyrsti og greinilegt að sviðsskrekkurinn er að baki hjá flestum. Alls komu 9 vinningar í hús í umferð dagsins sem er þreföldun á afrakstri gærdagsins! Guðrún Fanney Briem (Stúlknaflokkur U14) er ein íslensku keppendanna með fullt hús nú í byrjun móts.
Ferðalög og skipulag gekk vel að vanda, fimm mínútna seinkun á rútuferð á mótsstað verður að fyrirgefast í stórborg á borð við Prag. Aðstæður á keppnisstað með fínasta móti og hótelaðstæður íslenska liðsins að mestu góðar.
Eftir að íslensku keppendurnir höfðu teflt upp fyrir sig í 21 af 23 skákum í fyrstu umferðinni má segja að verkefnið hafi verið örlítið léttara á öðrum keppnisdegi. Viðureignir almennt jöfnuðust út og úrslitin eftir því.
Best gekk í opna U18 flokknum. Þrír vinningar komu í hús af fjórum mögulegum, góð umferð þar sem Sigurbjörn, Gunnar Erik og Benedikt náðu allir í sinn fyrsta sigur.


Vel gekk einnig í U10 flokknum þar sem TR-ingarnir Haukur Víðis Leósson og Pétur Úlfur Ernisson náðu sér báðir í sigur.
Stúlknaflokkurinn gekk einnig glimrandi vel og þær Emilía Embla og Iðunn náðu sér í góða sigra sínum aldursflokkum.

Stjarna umferðarinnar og mótsins hingað til var þó Guðrún Fanney Briem sem náði sér í sinn annan sigur. Hún var ein íslensku keppendanna í beinni útsendingu og gjörsamlega pakkaði andstæðingi sínum saman, vægast sagt! Guðrún lét 1930 skákstig dönsku stelpunnar líta út eins og Cheeriospakka-stig með samblöndu af góðum undirbúningi og vökul augu fyrir tækifærum stöðunnar!
Leikurinn 7.a4 er árangur skemmtilegrar samvinnu á ýmsum aldri. Hugmyndin er að svara 7…a6 með 8.Ha3!? leikur sem Vignir Vatnar og Benedikt Briem hafa báðir teflt í lengri skákum og undirritaður í hraðskákum á netinu. Birkir Ísak er svo ábyrgur fyrir hugmyndinni. Gaman þegar samvinnan skilar sér svona. Í þetta skiptið náði svartur að forðast gildruna ef gildru skildi kalla en þess í stað hafði Guðrún kynnt sér vel almennt plön í byrjuninni og var vel klár í bátana þegar sú danska gaf á sér taktískt færi.
Fyrir þessa frammistöðu fékk Guðrún Fanney 98% accuracy á lichess og 13 acl (average centipawn loss). Sérlega glæsilegt!
Önnur úrslit er hægt að sjá hér að neðan.
Úrslit

Pörun 3. umferðar:

Framhaldið:
Umferðir hefjast öllu jöfnu kl. 13:00 að íslenskum tíma. Sýnt er beint frá efstu borðum hvers aldursflokks.
Um mótið:
EM ungmenna í skák 2024 fer fram í Prag, Tékklandi. Íslensku fulltrúarnir á mótinu er 23 talsins, sem er metfjöldi. Alls telur íslenski hópurinn í kringum 60 manns enda eru á svæðinu bæði foreldrar, ömmur og afar og ýmsir aðrir áhugasamir fjölskyldumeðlimir. Gríðarlega stór og flottur hópur.
Teflt er í aldursflokkunum u8, u10, u12, u14, u16 og u18.
Fulltrúar Íslands á mótinu eru:

Þjálfarar íslenska hópsins eru Björn Ívar Karlsson, Daði Ómarsson og Ingvar Þór Jóhannesson. Gauti Páll Jónsson tekur svo þátt í seinni hálfleik að lokinni taflmennsku í Póllandi.

















