Kringluskákmót Víkingaklúbbsins 2024

    0
    897
    Hvenær:
    26. september, 2024 @ 16:30 – 19:00
    2024-09-26T16:30:00+00:00
    2024-09-26T19:00:00+00:00
    Hvar:
    Kringlan
    Kringlan 4-12
    103 Reykjavík
    Ísland
    Gjald:
    Ókeypis
    Tengiliður:
    Víkingaklúbburinn
    Kringluskákmót Víkingaklúbbsins 2024 @ Kringlan | Reykjavík | Reykjavíkurborg | Ísland

    Kringluskákmótið 2024 fer fram fimmtudaginn 26. september, og hefst það kl. 16:30. Mótið fer fram í Kringlunni, en að mótinu stendur Víkingaklúbburinn skákfélag, með aðsetur í Víkingsheimilinu í Víkinni, í samstarfi við markaðsdeild Kringlunnar. Mótið er öllum opið og er þátttaka ókeypis en skráning mun fara fram á Skák.is (Guli kassinn).
    Hámarkfjöldi keppenda er 40 manns og því er ekki hægt að tryggja þátttöku nema að skrá sig til leiks. Einnig er hægt að skrá sig í síma 8629744 (Gunnar). Fyrirkomulag mótsins er þannig að keppendur draga fyritækjaspjald úr hatti, sem keppandinn síðan teflir fyrir í mótinu.  Skráningu líkur kl 12.00 að hádegi á mótsdag. Tefldar verða 7 umferðir með 7 mínútur í umhugsunartíma. Mótið verður reiknað til hraðskákstiga.

    Sigurvegarinn mótsins hlýtur titilinn Kringuskákmeistari 2023 og forlátan verðlaunagrip að auki.  Þrjár efstu konur og þrjú efstu ungmenni 15. ára og yngri og þrjár efstu í stúlkur 15. ára og yngri fá sérstök verðlaun (Verðlaunagrip fyrir efsta sætið og verðlaunapeningur fyrir annað og þriðja sætið). Núverandi Kringlumeistari er Björn Þprfinnsson (2022), sem telfdi fyrir Decode. Skákstjórar á mótinu verða Haraldur Baldursson og Kristján Örn Elíasson.

     

    - Auglýsing -