Í dag lauk fimmta keppnisdegi á EM ungmenna í Prag. Vinningasöfnun dagsins hjá íslensku keppendunum var sá næstbesti hingað til en þó var tilfinningin að hópurinn hefði átt mikið inni í dag! Breiðabliksstrákarnir voru duglegir í vinningasöfnuninni í dag. Framundan er frídagur á mótinu.

Guðrún Fanney Briem hefur átt bestu gengi íslensku keppendanna að fagna hingað til, lagði Evrópumeistari U8 frá 2019 í gær og mætti í dag Evrópumeistara U12 frá því fyrir tveimur árum, heimastelpuna Severina Jakubse (1904).
Guðrún hefur lagt hart að sér í aðdraganda móts að byggja upp betri byrjanakerfi og hefði sú tékkneska líklegast fengið að finna fyrir því ef hún hefði haldið sig við þá byrjun sem hún teflir vanalega gegn 1.d4. Í þetta skiptið breytti hún útaf og fann ákveðið gat sem Guðrún á eftir að brúa en það er Benkö-bragðið.
Þrátt fyrir að byrjunin hafi misheppnað eilítið náði Guðrún eins og vanalega að koma skákinni í harða baráttu en á móti kostaði það mikinn tíma og undir lok tímamarkanna lék Guðrún skákinni niður.
Þrátt fyrir tapið er Guðrún enn efst Íslendinganna með 3 vinninga eftir 5 umferðir.

Jósef Omarsson hefur verið að standa sig vel en varð að sætta sig við sitt fyrsta tap í dag. Skák hans þróaðist ekki ósvipað og skák Guðrúnar. Andstæðingur Josefs virtist fyrst hafa betri tök á byrjuninni og miðtaflinu og fékk betra en Josef vann sig inn í skákina. Staða Josefs var að öllum líkindum „holdebar“ fram að 33.Kg2? þegar svartur klára dæmið í endataflinu.

Iðunn Helgadóttir var þriðji keppandinn sem var í beinni. Iðunn hefur eins og Guðrún verið í vinnu við að skerpa byrjanir. Undirbúningur gekk þokkalega gegn stúlkunni með „oddastiganafnið“ og svör voru meira og minna á reiðum höndum við því sem við áttum von á. Grunfeldsvörnin var kannski það sem var síst búist við en hvítur fékk fína stöðu en vantaði reynslu í stöðutýpunni, reynslu sem aðeins er hægt að fá úr djúpu lauginni! Tökin á stöðunni runnu hvítum úr greipum í miðtaflinu og svartur vann góðan tæknisigur eftur að hafa unnið peð.
Blikastrákarnir voru eins og áður sagði duglegir en þeir Örvar Hólm Brynjarsson, Sigurður Páll Guðnýjarson, Mikael Bjarki Heiðarsson og Gunnar Erik Guðmundsson náði allir í sigur í sínum flokkum. Aðrir sem unnu voru Benedikt Þórisson og Adam Omarsson auk þess sem Miroslava Skibina fékk vinning.
Jafntefli gerðu þau Haukur Víðis Leósson, Karma Halldórsson, Katrín María Jónsdóttir, Theodór Eiríksson og Tristan Fannar Jónsson sem tefldi mjög traust. Allir Íslendingarnir eru því komnir á blað á mótinu!

Úrslit 5. umferðarFramhaldið:
Frídagur er á morgun en svo heldur baráttan áfram á miðvikudaginn. Liðsafli er kominn í þjálfarasveitina en Gauti Páll Jónsson skottaðist yfir landamærin frá Póllandi þar sem hann sat að tafli og samdi brandara fyrir hópinn.

Umferðir hefjast öllu jöfnu kl. 13:00 að íslenskum tíma. Sýnt er beint frá efstu borðum hvers aldursflokks.
Um mótið:
EM ungmenna í skák 2024 fer fram í Prag, Tékklandi. Íslensku fulltrúarnir á mótinu er 23 talsins, sem er metfjöldi. Alls telur íslenski hópurinn í kringum 60 manns enda eru á svæðinu bæði foreldrar, ömmur og afar og ýmsir aðrir áhugasamir fjölskyldumeðlimir. Gríðarlega stór og flottur hópur.
Teflt er í aldursflokkunum u8, u10, u12, u14, u16 og u18.
Fulltrúar Íslands á mótinu eru:

Þjálfarar íslenska hópsins eru Björn Ívar Karlsson, Daði Ómarsson og Ingvar Þór Jóhannesson. Gauti Páll Jónsson tekur svo þátt í seinni hálfleik að lokinni taflmennsku í Póllandi.















