Norðurlandamót skólasveita lauk rétt í þessu í Bodø í Noregi. Lindaskóli tók silfrið í barnaskólaflokki en Vatnsendaskóli endaði í fjórða sæti í grunnskólaflokki.

Lindaskóli fékk 16½ vinning af 20 mögulegum. Í eðlilegu árferði ætti það duga örugglega til sigurs en því var ekki fyrir að fara í ár þar sem norska sveitin hlaut 17 vinninga!

Lokastaðan

Sveit Lindaskóla skipuðu

  1. Sigurður Páll Guðnýjarson (1814) 3½ af 5
  2. Engilbert Viðar Eyþórsson (1816) 4 v. af 5
  3. Örvar Hólm Brynjarsson (1661) 3 v. af 4
  4. Birkir Hallmundarson (1637) 5 v. af 5
  5. Nökkvi Hólm Brynjarsson (1487) 1 v. af 1

Liðsstjóri var Birkir Ísak Jóhannsson.

Vatnsendaskóli endaði í fjórða sæti – aðeins vinningi frá verðlaunsæti. Sveitin hlaut 8 vinninga af 16 mögulegum.

Arnar Logi fékk fullt hús á fjórða borði. Mynd: BKS

Sveit Vatnsendaskóla skipuðu

  1. Mikael Bjarki Heiðarsson (1948) 2 v. af 4
  2. Jóhann Helgi Hreinsson (1646) 1 v. af 4
  3. Guðmundur Orri Sveinbjörnsson (1473) 1 v. af 4
  4. Arnar Logi Kjartansson (1501) 4 v. af 4

Liðsstjóri var Birkir Karl Sigurðsson.

Heimasíða mótsins

- Auglýsing -