Keppni hófst í öllum deildum Íslandsmóts Skákfélaga í kvöld. Úrvalsdeildin reið á vaðið í gær en nú hafa öll lið hafið taflmennsku.
Kíkjum á gang mála
Úrvalsdeild – Kvikudeildin
Fjölnismenn fóru vel af stað í gær með stórsigri og sama gerðu KR-ingar. TR vann sigur á Breiðablik með minnsta mun. Í 2. umferðinni mættust einmitt efstu liðin!
Skákdeild Fjölnis – Skákdeild KR
Hér fór í hönd æsispennandi viðureign. Fjölnismenn náðu yfirhöndinni þegar Oliver Aron náði að kreysta fram vinning gegn Arnþóri Einarssyni.
23.Rf2? var slakur leikur þar sem eftir 23…Db1 komst svartur inn 24.a3 Bc2 og lið fellur. Hvítur hefði líklegast haldið velli með 23.Dxc2 Bxc2 og þá 24.Rf2.
Dagur Arngrímsson náði að jafna fyrir KR þegar hann lagði Dag Ragnarsson að velli. Dagsformið greinilega betra hjá Degi A. Umframpeð í hróksendatafli dugði til sigurs.
Næst hrúguðust jafnteflin inn og úrslitin réðust í lengstu skák umferðarinnar…sem var aftur hjá Bandaríkjamanninum Brewington Hardaway sem teflir fyrir KR. Litháinn Tomas Laurusas náði að brjóta niður varnir Bandaríkjamannsins í kringum 60. leik…stórkostlegur svíðingur. Líklegast hefði það verið of mikið að Hardaway hefði haldið erfiðu endatafli annan daginn í röð í langri skák.
Gríðarlega mikilvægur sigur með minnsta mun hjá ríkjandi Íslandsmeisturum sem setur þá í góða stöðu.
Taflfélag Reykjavíkur – Taflfélag Vestmannaeyja
TR-ingar voru stigahærri á öllum borðum en engu að síður féll ansi mikið með TR-ingum í þessari viðureign.
Mads Boe var slegin skákblindu gegn Sulypa á fjórða borði.
19.Dc2?? og gafst upp um leið. Biskupinn á f4 er óvaldaður.
Sama gerðist í raun í skák Margeirs gegn Guðmundi Gíslasyni. Margeir hafði staðið vel í byrjuninni en aðeins misst tökin og Guðmundur stóð síst lakar þegar hann fór sömu leið og Mads Boe.
33…Be3?? 34.Bxg4 og kall í hafið.
Örn Leó hafði með sinni ótrúlegu keppnishörku náð að komast út úr erfiðum flækjum peði yfir í hróksendatafli. Erfitt var að vinna endataflið en þá dundu ósköpin yfir í 40. leik.
40…fxg4?? (40…Kf6 og skákin ætti að enda með jafntefli) 41.Hc8! og h-peðið verður ekki stoppað.
Öruggur sigur TR en mögulega aðeins of stór miðað við gang mála.
Taflfélag Garðabæjar – Skákdeild Breiðabliks

Blikar hefðu átt að hafa öruggan sigur í þessari viðureign en TG-ingar bitu vel frá sér í þessari!
Landsliðskonan Lenka Ptacnikova lagði Danann Mikkel M. Jacobsen
Þrátt fyrir góða baráttu urðu TG að lúta í dúk í viðureigninni.
TR og Fjölnir eru því einu liðin sem hafa unnið báðar viðureignir sínar. Laugardagurinn verður mikilvægur. TR mætir KR í morgunumferðinni og svo verður toppslagur Fjölnis og TR í seinni umferðinni.

Brösulega gekk að koma 1-4. deild af stað. Úrvalsdeildin hafði hafið tafl í 2. umferð en þá var allt í myrkri í íþróttasalnum í Rimaskóla þar sem neðri deildirnar tefla. Greinarhöfundur var víst tíundi í röðinni með blindskákarbrandara við litla hrifningu forseta Skáksambandsins sem var sveittur ásamt Helga Árnasyni að reyna að laga ástandið. Ljósin kviknuðu að lokum og allir deildir fóru af stað!
1.deild
Í 1. deild fara Akureyringar annarsvegar og sveit Víkingklúbbsins hinsvegar vel af stað. Báðar sveitir unnu sigur 5,5-0,5 í sínum viðureignum.
Víkingar mæta sterkir til leiks með þrjá erlenda skákmenn og heimavarnarlið Akureyrar er sterkt sem fyrr með skólastjórann á efsta borði.
2.deild
Ung og skemmtileg sveit Breiðabliks-c fer vel af stað í 2. deildinni en sterk c-sveit TR og b-sveit Fjölnis unnu sterka sigra í jöfnum viðureignum og verða að teljast sigurstrangleg í þessari deild.

3.deild
Dímon gjörsamlega átu í sig 4. deildina í fyrra og verða að teljast líklegir í 3. deildinni líklegast með sterkasta liðið. D-sveit TR virðist ekki hafa fengið minnisblaðið með þessum upplýsingum og þeir náðu hreint ótrúlegum úrslitum! Með þeim óvæntari seinni ár!
Ljóst er að 3. deildin verður athyglisverð! Goðinn er með sterka sveit en urðu að sætta sig við jafntefli. KR-c byrjar best með 5-1 sigri en hér eiga eftir að verða sviptingar!

4.deild
Fjölmargar sveitir hófu 4. deildina á 6-0 stórsigri. Þar á meðal Skákfélag Íslands sem ritstjóri (GB) taldi sigurstranglega í deildinni. Eitthvað telur hinn ritstjórinn (IÞJ) að GB hafi verið að sofa á Snooker og Poolstofunni sem koma ekki bara með grjótharða menn til leiks heldur aukinheldur keppnisbúninga!
Baráttan verður vafalítið hörð hér en Skákfélag Íslands og Poolstofan verða að teljast líkleg, sérstaklega þar sem Mislyndu biskuparnir drógu sig úr leik rétt fyrir mót.

Taflmennskan heldur áfram um helgina. Tvær umferðir eru tefldar á laugardeginum klukkan 11:00 og 17:30 og svo síðasta umferð þessarar keppnishelgar á sunnudeginum klukkan 11:00.

















