Kristján Örn Elíasson hefur um margra mánaða skeið stjórnað, ákaflega vel heppnuðum, vikulegum útvarpsþáttum, á miðvikudögum, á Útvarpi Sögu – sem heita; Við skákborðið.
Í dag mætti Kjartan Briem formaður Breiðabliks í Skipholtið. Í kynningu um þáttinn segir:
Kristján Örn tekur á móti Kjartani Briem formanni skákdeildar Breiðabliks og framkvæmdarstjóra Isavia ANS en félagið er dótturfélag Isavia sem annast flugumferðarstjórn í íslenska flugstjórnarsvæðinu. Í upphafi þáttar segir Kjartan aðeins frá starfi eða hlutverki Isavia ANS en svo snúa þeir sér að starfinu hjá Skákdeild Breiðabliks. U-25 hópur Breiðabliks tekur nú í fyrsta skipti þátt í Evrópumóti félagsliða sem fer fram í Serbíu dagana 20. til 26. október. Þrjár umferðir hafa verið tefldar og hefur liðið staðið sig ágætlega og er í 38 sæti af 84 liðum sem taka þátt í keppninni. Í síðustu umferð gerði Vignir Vatnar jafntefli við Boris Gelfand sem á sínum tíma var einn allra sterkasti skákmaður heims (2.777 elo-skákstig árið 2013) og keppti m.a. einvígi við Vishy Anand um heimsmeistaratitilinn í skák árið 2012. Einvígið endaði með jafntefli 6-6 en Anand hélt titlinum á oddastigum, þ.e. þeir tefldu fjórar atskákir sem enduðu með sigri Anand 2,5 – 1,5. Kjartan talar um ungu og efnilegu krakkana í skákdeildinn og vill hann sjá átak í að fjölga stúlkum í skák. Hann segir fákeppni á milli þeirra helst há framförum hjá þeim. Sé horft fram um nokkur ár sér hann jafnvel fyrir sér sérstaka kvennadeild í skák sem yrði þá háð á öðrum tíma en hið hefðbundna Íslandsmót skákfélaga. Margt annað kom fram í spjalli þeirra Kristjáns og Kjartans en hlusta má á þáttinn í heild sinni í spilaranum.
Eldri þætti má nálgast hér á Spotity.
- Auglýsing -














